Sekta Meta um 110 milljarða króna

Mark Zuckerberg er forstjóri Meta.

Mark Zuckerberg er forstjóri Meta. AFP

Neteftirlitsstofnun Ítalíu sektaði í dag Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, um 805 milljónir evra, sem jafngildir um 110 milljörðum króna. 

Sektin er vegna meints aðgangs Meta að ljósmyndum og myndskeiðum notenda Android-snjalltækja án þess að samþykkis þeirra hafi verið aflað eða þeir hafi verið upplýstir um það. 

Aðgangur í gegnum Facebook

Meta er sagt hafa fengið aðgang að efninu í gegnum eiginleika í Facebook-forritinu sem stingur upp á efni til birtingar úr persónulegu myndasafni notenda.

Meta hefur nú 60 daga til að gera eiginleikann óvirkan og afla sérstaks samþykkis notenda áður en hann verður tekinn aftur í notkun.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅