Microsoft bindur enda á bilunina
Erlent | AFP | 14.11.2026 | 17:39 | Uppfært 17:59
Bilunin hjá Microsoft var meðal þeirra allra umfangsmestu og lengstu sem sést hafa meðal stóru tæknifyrirtækjanna. AFP/Idrees Mohammed
Microsoft hefur tilkynnt að fyrirtækið hafi endurheimt þjónustu við viðskiptavini og þar með í raun bundið enda á umfangsmikla bilun sem olli ringulreið og truflaði opinbera þjónustu og atvinnulíf víða um heim.
„Við höfum lokið aðgerðum okkar til að taka á undirliggjandi orsök atviksins og endurheimt þjónustu við þá viðskiptavini og þau svæði sem urðu fyrir áhrifum,“ sagði í færslu fyrirtækisins á samfélagsmiðlinum X.
Hafði áhrif í 74 löndum
Microsoft hafði þegar greint frá „víðtækum bata“ í Outlook-tölvupóstaþjónustunni og annarri þjónustu í gær og sagt að truflunin mikla hafi stafað af tæknilegu vandamáli, hún væri ekki tengd netárásum eða gervigreind.
Bilunin gekk yfir heimsbyggðina á fimmtudag og gerði þjónustu fyrirtækisins óaðgengilega í að minnsta kosti 74 löndum um heim allan.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗