Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð

Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Daníel Leó Grétarsson var í byrjunarliði Íslands og stóð sig með prýði þegar liðið vann stórsigur á Búlgaríu, 5:0, í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöldi.

Daníel er lykilmaður í varnarleik íslenska landsliðsins en fyrir landsleikjagluggann var óvíst hvort hann yrði með liðinu.

Miðvörðurinn fékk leyfi frá félagsliði sínu, dönsku meisturunum í AGF, til að vera frá æfingum og leikjum af persónulegum ástæðum.

Daníel ræddi við Fótbolta.net eftir sigurinn í gær og greindi þar frá ástæðunni fyrir fjarverunni.

„Það eru að koma ótal sögur um hvað hafi verið í gangi. Dóttir mín þurfti að fara í stóra aðgerð í Svíþjóð og ég þurfti bara að fá að vera pabbi og eiginmaður í þessa tíu daga sem ég var í burtu,“ sagði Daníel við Fótbolta.net en aðgerðin heppnaðist vel.

„Sem betur fer gekk það mjög vel, heilsan var góð og ég náði að komast í þetta verkefni. Þetta var bara nauðsynlegt, AGF sýndi mér skilning og ég er ánægður með að geta komið hingað og spilað fyrir landsliðið.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅