Gustave gæti haft allt að 300 mannslíf á samviskunni – Nú er hann horfinn sporlaust
Pressan
Laugardaginn 14. nóvember 2026 17:30
Krókódíll sem tengist þó málinu ekki. Mynd/Getty
Íbúar við Ruziz ána í Búrúndí í Afríku hafa lengi vel óttast að hitta Gustave. Þetta er risastór krókódíll sem talið er að hafa allt að 300 mannslíf á samviskunni.
Það sem veldur mörgum miklum áhyggjum þessa dagana er að engin veit með vissu hvar hann er núna. Daily Star skýrir frá þessu.
Fólk veitti Gustave fyrst athygli í lok tíunda áratugarins. Hann skar sig þá strax úr frá öðrum krókódílum vegna stærðar sinnar og margra áverka, þar af voru þrjú skotsár.
Hann er sagður vera minnst sex metra langur og rúmlega 900 kíló. Talið er að hann sé rúmlega 60 ára.
Vísindamenn hafa sett fram kenningu um að stærð hans hafi gert honum erfitt fyrir að veiða bráð sem er fljót í förum og því hafi hann ráðist á stærri dýr og fólk.
Það er þó umdeild hversu mörgum hann hefur banað. Sumir segja allt að 300 en aðrir telja að talan sé nær því að vera 60.
Reynt var að fanga Gustave 2004 og voru gildrur þá settar upp meðfram ánni en Gustave slapp alltaf framhjá þeim.
Í síðustu tilrauninni var lifandi geit notuð sem agn. Mikið óveður eyðilagði myndavélarnar, sem voru notaðar til að fylgjast með geitinni, og næsta morgun var geitin horfin. Enginn veit hvað gerðist.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗