Tvö rauð og sigurmark á lokamínútunum

Ísland situr nú í þriðja sæti riðilsins með eitt stig.

Ísland situr nú í þriðja sæti riðilsins með eitt stig. Ljósmynd/Alex Nicodim

U19 ára sveit Íslands í knattspyrnu mátti þola svekkjandi tap gegn finnsku sveitinni, 1:0, í 2. umferð A-deildar í undankeppni Evrópumótsins í Cardiff í dag.

Ísland er þar með í þriðja sæti riðilsins með eitt stig á meðan Finnar skjóta sér á toppinn með fjögur.

Finnland missti mann af velli á 63. mínútu er Leevi Palmula fékk sitt annað gula spjald en aðeins tveimur mínútum síðar fékk Helgi Jóhannsson, leikmaður Aalborg í Danmörku, einnig sitt annað gula spjald og voru liðin því bæði manni færri.

Sigurmark Finna kom ekki fyrr en á 87. mínútu þegar Nicklas Kroupkin kom boltanum í netið.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅