Dregin upp villandi og ósanngjörn mynd
Í bréfi sem formenn Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ), Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) sendu lífeyrissjóðunum í gær var dregin upp mynd sem forstjóri og stjórnarformaður Icelandair telja villandi og ósanngjarna.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Boga Nils Bogasyni forstjóra og Guðmundi Hafsteinssyni, stjórnarformanni Icelandair.
í bréfi gærdagsins sögðu verkalýðsleiðtogarnir viðræður hafa gengið hægt og að lítið hafi þokast í átt að samkomulagi. Icelandair hafi lagt áherslu á heimildir til að leigja erlendar áhafnir og vildu þeir svör um hvort stæði til að flytja hluta starfsemi Icelandair úr landi.
Skortir ekki vilja
Í yfirlýsingu forystumanna Icelandair segir að Icelandair hafi skýran vilja til að ná samningum við öll stéttarfélög landsins. Samningarnir verði þó að vera ábyrgir og taka mið af stöðu og samkeppnishæfni Icelandair til lengri tíma.
Er bent á það launahækkanir hérlendis hafi verið mun meiri en í helstu samkeppnislöndum. Icelandair geti því ekki samþykkt breytingar sem leiði til kostnaðarauka sem félagið getur ekki borið án þess að veikja samkeppnishæfni sína á alþjóðlegum markaði.
„Það er jafnframt ekki rétt að Icelandair skorti samningsvilja þótt félagið geti ekki fallist á þær kröfur sem lagðar hafa verið fram. Samningsvilji felst ekki í því að annar aðilinn samþykki kröfur hins, heldur að báðir aðilar leiti raunhæfrar niðurstöðu sem þeir geta staðið undir.“
Starfsemi í Eistlandi í áratugi
Í yfirlýsingunni segir einnig að markmið Icelandair sé ekki að flytja störf til annarra landa. Kjarnastarfsemi, höfuðstöðar og meginstarfsemi verði áfram á Íslandi.
„Á sama tíma verður Icelandair að geta þróað rekstur sinn og nýtt tækifæri á alþjóðlegum markaði. Starfsemi erlendis getur því vaxið samhliða starfseminni á Íslandi. Slík uppbygging er hugsuð til að styrkja Icelandair samstæðuna og skapa ný viðskiptatækifæri, ekki til að veikja íslenska starfsemi.“
Er bent á að alþjóðleg starfsemi sé ekki ný á nálinni hjá félaginu enda hafi Icelandair meðal annars verið með dótturfélag í Eistlandi í um tvo áratugi. Sú starfsemi hafi ekki komið í stað uppbyggingar á Íslandi, heldur hafi hún þvert á móti verið liður í að bæta samkeppnishæfni félagsins og skapa þannig forsendur fyrir vexti Icelandair
„Við höfnum jafnframt þeirri ályktun að uppbygging Icelandair erlendis sé til þess ætluð að komast hjá íslenskum kjarasamningum eða íslenskum vinnurétti. Starfsemi félagsins byggir á þeim lögum, reglum og samningum sem um hana gilda á hverjum stað.“
Reiðubúin til áframhaldandi viðræðna
Undir lok yfirlýsingarinnar segir að Icelandair starfi á alþjóðlegum markaði þar sem samkeppni er hörð. Icelandair þurfi því að vera sterk og samkeppnishæft fyrirtæki.
„Án samkeppnishæfni verða hvorki til örugg störf, frekari uppbygging né sú öfluga flugstarfsemi á Íslandi sem allir aðilar vilja standa vörð um.“
„Við erum reiðubúin til áframhaldandi, málefnalegra viðræðna við öll stéttarfélög og viljum ná samningum eins fljótt og unnt er. Það þarf hins vegar að gerast á forsendum sem tryggja bæði sanngjörn kjör starfsfólks og getu Icelandair til að ná árangri í alþjóðlegri samkeppni, fjárfesta og vaxa til framtíðar.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
