Tvö rauð og sigurmark á lokamínútunum
U19 ára sveit Íslands í knattspyrnu mátti þola svekkjandi tap gegn finnsku sveitinni, 1:0, í 2. umferð A-deildar í undankeppni Evrópumótsins í Cardiff í dag.
Ísland er þar með í þriðja sæti riðilsins með eitt stig á meðan Finnar skjóta sér á toppinn með fjögur.
Finnland missti mann af velli á 63. mínútu er Leevi Palmula fékk sitt annað gula spjald en aðeins tveimur mínútum síðar fékk Helgi Jóhannsson, leikmaður Aalborg í Danmörku, einnig sitt annað gula spjald og voru liðin því bæði manni færri.
Sigurmark Finna kom ekki fyrr en á 87. mínútu þegar Nicklas Kroupkin kom boltanum í netið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗