Endurkoma ekki í kortunum
Enski landsliðsmaðurinn Trent Alexander-Arnold ætlar ekki að yfirgefa spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid í janúarglugganum.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá en Trent, sem er 28 ára gamall hægri bakvörður, hefur nýlega verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina.
Trent er uppalinn hjá Liverpool og lék með aðalliði félagsins í níu ár. Hann var í lykilhlutverki og varafyrirliði liðsins áður en hann gekk í raðir Real Madrid á frjálsri sölu í fyrrasumar.
Á Anfield varð hann tvívegis Englandsmeistari og vann Meistaradeild Evrópu.
Trent hefur einungis byrjað fjóra af tólf leikjum Real Madrid í spænsku deildinni en þrátt fyrir það ætlar hann að berjast fyrir sæti sínu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗