„Kominn tími fyrir hann til að taka skrefið og standa á eigin fótum“

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is, eins og alla föstudaga.

Aron Baldvin Þórðarson var ráðinn þjálfari Fylkis á dögunum og tekur hann við af Heimi Guðjónssyni. Hann hefur gert góða hluti sem aðstoðarþjálfari Víkings undanfarin ár.

„Það er búið að orða hann við aðalþjálfarastörf í þó nokkurn tíma og þetta er stórt starf þó Fylkir sé í Lengjudeildinni, það er pressa á þeim að fara upp. Það verður gaman að fylgjast með honum,“ sagði Helgi.

„Hann er búinn að læra helling undanfarin ár, fyrst af Arnari og svo Sölva. Nú er kominn tími  fyrir hann að taka skrefið og standa á eigin fótum. Ég held að þetta sé fínt skref fyrir Fylki,“ sagði Hörður.

Þátturinn er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅