Kemst ekki í Fríkirkjuna í kvöld

Innlent | mbl | 14.11.2026 | 16:12

Lucy Foley kemur ekki fram í Fríkirkjunni.

Lucy Foley kemur ekki fram í Fríkirkjunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn af þekktustu gestum bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir þetta árið, Lucy Foley, mun ekki koma fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld eins og áformað var. 

Ástæða þess að Foley forfallast er sú að öll flugumferð í Bandaríkjunum var stöðvuð í gær vegna bilunar í fjarskiptakerfum. 

Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu hátíðarinnar. Í færslunni kemur fram að Foley biðjist innilegrar afsökunar á fjarveru sinni og að skorti á vilja sé ekki um að kenna. 

Foley, sem er fertugur breskur rithöfundur, er þekktust fyrir skáldsögur á borð við The Paris Apartment og The Guest List. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅