Fram gerði góða ferð norður

Harpa Margrét Friðgeirsdóttir fagnar marki í dag.

Harpa Margrét Friðgeirsdóttir fagnar marki í dag. Ljósmynd/Egill Bjarni

Fram gerði góða ferð til Akureyrar og vann KA/Þór, 30:24, í níundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í dag. 

Fram er í fjórða sæti deildarinnar með tólf stig eftir leikinn en KA/Þór er í sjöunda sæti með fjögur. 

Fram var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14:10, og jók forskot sitt í þeim seinni. 

Lena Margrét Valdimarsson skoraði fimm mörk fyrir Fram en Ethel Gyða Bjarnasen fór mikinn og varði 14 skot.

Hjá KA/Þór skoraði Lydía Gunnþórsdóttir sex mörk. 

Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 6, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Herdís Eiríksdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Joan Rúnadóttir Johannesen 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 7 (22%). 

Mörk Fram: Lena Margrét Valdimarsdóttir 5, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 4, Hanna Guðrún Hauksdóttir 4, Kristrún Steinþórsdóttir 4, Harpa María Friðgeirsdóttir 3, Valgerður Arnalds 2, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Ebba Guðríður Ægisdóttir 1, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 1.

Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 14 (41°%). 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅