„Ég labbaði inn og vissi bara að ég vildi vera þarna“
Kristín Berta Sigurðardóttir, heilsunuddari og eigandi Birtu Heilsu, hafði í heilt ár talað um að hana langaði í stærra húsnæði til að geta stækkað starfsemina og boðið upp á fjölbreyttari þjónustu. Þegar henni var svo sagt upp leigusamningi á atvinnurými sínu í Kópavogi í mars í fyrra varð sú pæling skyndilega að veruleika, þótt hún vissi ekki enn hvert hún ætti að fara með starfsemina.
Lausnin kom þó úr óvæntri átt aðeins örfáum vikum síðar, á tónleikum í apríl. Í kjölfarið fékk hún húsnæði við Borgartún 28 og um leið og hún fékk lyklana í hendurnar hófst hún handa við framkvæmdir. Með jákvæðnina að vopni hefur hún gert nýja rýmið að hlýlegum og notalegum stað þar sem hún tekur á móti fólki í nudd, jóga og aðra heilsutengda þjónustu. Og hún vann megnið af vinnunni sjálf.
„Það kom mér á óvart þegar ég frétti að ég væri að missa rýmið en ég var ekki lengi miður mín. Ég fór fljótt að sjá þetta sem spennandi verkefni. Það er eitt að ætla sér að gera eitthvað og annað að nenna að láta verða af því. Uppsögnin var því sparkið í rassinn sem ég þurfti.“
Kristín Berta sóaði engum tíma og byrjaði strax að líta í kringum sig eftir nýju atvinnurými en fann ekkert sem hentaði henni eða heillaði.
„Við vorum þrjár sem vorum jafnvel að hugsa um að taka eitthvað á leigu saman og deila aðstöðunni. En mér leist einhvern veginn ekkert á það sem var í boði. Í húsnæðinu sem við skoðuðum þurfti að gera gríðarlegar breytingar til þess að það hentaði undir starfsemina. Þetta var bara eitthvað skrýtið og tilfinningin ekki rétt, þannig að ég hélt áfram að leita. Svo drifum við hjónin okkur á Bryan Adams-tónleika í Hörpu. Þegar ég labbaði þar inn rakst ég á son fyrsta yfirmanns míns, þess sem réð mig til starfa í bankanum á sínum tíma. Það var þá sem boltinn fór að rúlla.“
„Ég náttúrlega sveif á hann“
Kristín Berta sér ákveðið samhengi í því hvernig hlutirnir æxluðust eftir að hún hafði lengi talað um að vilja flytja. „Þegar maður er búinn að setja eitthvað út í kosmósið en gerir ekkert í því sjálfur þá fær maður stundum aðstoð. Alheimurinn hjálpar aðeins til,“ segir hún og rifjar upp óvænta fundinn á tónleikunum.
„Hann sat þarna, þessi elska, og ég náttúrlega sveif á hann. Ég hafði lengi verið á leiðinni að hringja í pabba hans því þeir eiga fasteignir og rými sem þeir leigja út. Ég sagði honum að ég væri að leita mér að húsnæði og spurði hvort hann ætti ekki eitthvað fyrir mig. Úr varð að daginn eftir hittumst við í Borgartúninu svo ég gæti skoðað rýmið, sem kom svo á daginn að hentaði fullkomlega. Það er svo miðsvæðið, bara brilljant.“
Um leið og Kristín Berta gekk inn í rýmið var hún algjörlega ástfangin.
„Ég upplifði sömu tilfinningu og þegar við keyptum íbúðina okkar. Ég labbaði inn og vissi bara að ég vildi vera þarna.“
Stöllur hennar höfðu ekki áhuga á Borgartúninu og Kristín Berta ákvað því að taka rýmið á leigu ein. „Þegar ég sá salinn langaði mig heldur ekkert að skipta honum upp. Ég sá svo marga möguleika og vildi nýta allt plássið undir mína starfsemi,“ segir hún og hlær.
Úr 18 fermetrum í 60
Við flutningana fór Kristín Berta úr 18 fermetrum í Hamraborg í 60 fermetra í Borgartúni. Þar fékk hún svigrúm til að halda námskeið sem hana hafði dreymt um en fyrst þurfti að laga rýmið að starfseminni. Það hafði áður verið skrifstofa með gráum veggjum, hvítu lofti og sterkri lýsingu.
Hún fékk lyklana í maí og hafði því tíma til að standsetja nýja staðinn áður en hún skilaði þeim gamla. „Heyrðu, taktu bara lyklana og komdu þér fyrir í rólegheitunum,“ sagði hann við mig. Það skipti svo miklu máli að hafa tíma til að græja allt. Ég hélt áfram að nudda á daginn og svo fóru öll kvöld og allar helgar í að standsetja Borgartúnið.“
Hvað skipti þig mestu máli þegar þú fórst að móta rýmið?
„Að fólkið mitt gæti slakað á um leið og það gengi inn. Ég vildi skapa hlýlegt og umvefjandi umhverfi, bæði fyrir nuddþegana mína og námskeiðshópana. Þar skipta litir, efni og birta rosalega miklu máli.“
Kristín Berta hafði þegar fundið stíl sem hún var ánægð með í Hamraborg og ákvað að byggja áfram á honum. „Ég var búin að gera þetta tveimur árum áður og var svo ánægð með útkomuna að ég útvíkkaði hana bara. Það skipti mig líka máli að geta nýtt áfram það sem ég átti, í stað þess að henda einhverju sem var nánast nýtt.“
Lýsingin og hljóðvistin í fyrirrúmi
Áður en hún hófst handa fékk hún Láru Sigríði Örlygsdóttur, vinkonu sína og lýsingarhönnuð, til að skoða rýmið með sér. Lára hafði einnig ráðlagt henni þegar hún kom sér fyrir í Hamraborg.
„Ég vissi að ég færi ekki af stað fyrr en hún væri búin að koma og fara yfir lýsinguna og hljóðvistina með mér. Ég er ekki sérfræðingur í lýsingu og þá fæ ég ráð hjá þeim sem kunna þetta.“
Gólfefnin gátu haldið sér en annað kallaði á meiri vinnu. „Lýsingin var vægast sagt óhentug. Þetta var bara flóðlýsing sem ég nota núna eingöngu þegar ég þríf. Ég málaði allt í mínum litum og setti hljóðdempandi plötur á einn vegginn. Hann var líka ljótur, þar höfðu verið hurðir og áferðin var mismunandi. Ég þoli ekkert svoleiðis,“ segir hún og hlær.
Þótt Borgartúnið sé erilsöm gata segir hún umferðarniðinn lítið gera vart við sig. Rýmið snúi frá götunni, í átt að íbúðarhúsunum. Hljóð berist hins vegar úr sameiginlegri aðstöðu og annars staðar úr húsinu.
„Ég leigi þarna með fleirum sem taka á móti fólki í viðtöl. Allt sem maður getur gert til að dempa hljóðið skiptir máli og ég finn alveg mun.“
Gardínum var fjölgað og lýsingin löguð að ólíkum þörfum starfseminnar. „Ég get stýrt birtustiginu eftir því hvað ég er að gera. Birtan er yfirleitt lágstemmd en ég get aukið hana þegar ég er að kenna og dregið úr henni aftur þegar það hentar. Ég setti líka lampa á bak við gardínurnar því ég vildi fá meiri óbeina birtu.“
Gerði sjálf það sem hún gat
Kristín Berta lagði metnað í framkvæmdirnar og vildi gera sem mest sjálf, bæði til að halda kostnaði niðri og láta reyna á eigin getu. „Allt sem ég gat gert sjálf gerði ég bara sjálf. Maðurinn minn var erlendis mestallan tímann en bróðir minn kom og greip í pensilinn með mér. Frændi minn, sem er rafvirki, sá um allt rafmagn og Bjarki vinur minn setti upp hljóðdempunina. Ég er vön að bjarga mér og hef málað allt heima hjá mér.“
Þau hjónin höfðu raunar nýlokið við þriggja mánaða framkvæmdir á heimili sínu þegar flutningarnir komu til. „Við vorum bókstaflega að reka síðasta naglann í þegar þetta gerðist.“
Fór eitthvað af stílnum heima hjá þér með í Borgartúnið?
„Ég er með minn stíl heima og annan á stofunni. Viðurinn er til dæmis mjög einkennandi fyrir stofuna. Svefnherbergið mitt er þó blátt og ég er líka með bláan vegg í stofunni heima, svipaðan þeim sem er hér. Ég er rosalega mikið fyrir blátt, það er alveg minn litur. Þannig að stíllinn hefur kannski frekar smitast héðan yfir á heimilið. Ég á líka eftir að taka stigahúsið heima í gegn og hugsa að ég sæki innblástur hingað.“
Nuddstofuna innréttaði hún með sama hætti og áður, svo viðskiptavinir úr Hamraborg gætu þekkt sig aftur. Þá reyndist hægt að bæta við húsgögnum úr sömu línu og hún átti fyrir og halda þannig samræmi í innréttingunum.
Hagsýnin réð ferðinni
Kristín Berta ákvað að klára allar framkvæmdir áður en hún opnaði. Hún flutti um mánaðamótin júní og júlí og tók á móti fyrsta viðskiptavininum 1. júlí. „Þá var allt fullklárað. Ég þoli ekki að vera með eitthvað óklárað og vann út í eitt. Ef ég var ekki að nudda var ég niður frá að gera og græja.“
Stærra húsnæði og aukið framboð kölluðu þó á meira en málningu og nýja lýsingu. „Ég þurfti að kaupa jógadýnur, jógakubba, kodda, teppi og nuddbolta, allt sem þurfti fyrir námskeiðin. Ég vil að fólk geti bara komið og þurfi ekki að eiga neinn búnað sjálft.“
Hún lagði áherslu á að eiga fyrir útgjöldunum en viðurkennir að framkvæmdirnar hafi gengið á sjóðina.
„Ég á alltaf einhvern smá sjóð en hann kláraðist að vísu þarna,“ segir hún og hlær. „Þetta voru alveg einhverjar milljónir. En ég var líka sniðug. Ef ég hefði látið heilspartla vegginn og fengið einhvern til að mála rýmið hefði það kostað mig hálfa milljón. Ég keypti í staðinn hljóðdempandi plötur á útsölu í Bauhaus fyrir 100.000 krónur, málningu fyrir 30.000 krónur og greiddi vini mínum 30.000 krónur fyrir uppsetninguna. Þetta urðu því 160.000 krónur og ég gat notað mismuninn í dýnur og kubba. Þetta er bara helvíti vel gert, þótt ég segi sjálf frá.“
Stolt á hverjum degi
Kristín Berta lét ekki staðar numið við sitt eigið rými heldur tók sameiginlega setustofuna aðeins í gegn, með samþykki hinna leigjendanna.
„Þetta var allt svolítið hrátt þegar ég kom og svart. Ég keypti fatahengi og mottu svo fólk gæti farið úr yfirhöfnum og skóm. Svo komu teppi og púðar í sófann og við settum upp kaffi- og teaðstöðu. Mér finnst skipta máli að það sé hlýlegt og notalegt alveg frá því að fólk opnar dyrnar.“
Finnurðu fyrir stolti þegar þú horfir yfir það sem þú hefur gert?
„Já, eiginlega á hverjum einasta degi þegar ég geng þarna inn. Ég er svo stolt af þessu rými og það er svo gott að koma þangað. Fólkið mitt talar líka um hvað þetta sé notalegt. Þótt stofan í Hamraborg hafi verið dásamleg er þetta ennþá betra.“
Hún segir hagsýni og fallegt umhverfi vel geta farið saman. „Ég vil nýta hlutina vel og mér finnst gaman að finna leiðir til að gera fallegt án þess að allt þurfi að kosta svo mikið. Ég er samt ekki til í að slá af kröfum um gæði. En ég er orðin ansi lunkin í að gera fallegt fyrir lítinn pening. Ég ætla bara aðeins að leyfa mér að vera montin af því.“
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/12/1691232.jpg)



