Hvað er vitað um stjórnmálaskoðanir skotmannsins í Kraká og er víst að þær hafi tengst harmleiknum?

Vika er liðin síðan sex létu lífið og fjöldi særðist eftir að ungur maður hóf skothríð í pólsku borginni Kraká laugardaginn 7. nóvember sl. Skotmaðurinn, hinn 24 ára gamli Michał Oksiński, særðist í átökum við lögreglu og lést af sárum sínum tveimur dögum síðar. Tala látinna átti eftir að hækka þegar rannsókn málsins hófst, en þá kom á daginn að Oksiński hafði eins banað foreldrum sínum og systur á heimili þeirra í Ostrowiec Świętokrzyski. Tveggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í Póllandi og er málið rannsakað sem hryðjuverk.

Hver var skotmaðurinn?

Stóra spurningin á allra vörum er hvernig svona nokkuð gat gerst. Innviðaráðherra Póllands greindi frá því strax á laugardeginum að vísbendingar væru um að Oksiński hafi verið undir áhrifum öfgahægristefnu og öfgafullrar þjóðernishyggju en rannsóknin væri þó enn á frumstigi. Færði ráðherrann ekki frekari rök fyrir þessum grun og olli það gífurlegu fjaðrafoki og aðeins örfáum klukkustundum eftir árásina voru falsaðar myndir, sem átt hafði verðið við með gervigreind, komnar í dreifingu ásamt skjáskotum af samfélagsmiðlum Oksiński sem voru slitnar úr samhengi. Þar var skotmaðurinn sagður undir áhrifum vinstristefnunnar og pólsk yfirvöld sökuð um lygar.

En hvað var rétt og hvað var rangt í þessu? Eftir því sem leið á vikuna kom skýrari mynd á málið. Vinnufélagar og gamlir skólafélagar Oksińskis stigu fram og lýstu ungum manni sem hafði lengi verið heillaður af fjöldamorðingjum. Hann teiknaði í skóla ofbeldisfullar myndir af hakakrossum, hengingum og vopnuðum mönnum að fremja skotárásir í skólum.

Hann hafði skrifað skammstöfunina GGER á skáp í vinnu sinni en það er talið vísa til bandaríska fjöldamorðingjans Elliot Rodger sem banaði sex og særði 14 í skotárás við háskólann í Kaliforníu árið 2014. Rogers er álitinn hetja innan tiltekinna jaðarsamfélaga á netinu, þar með talið svokallaðra incela, karlmanna sem telja sig hlunnfarna af konum. Skammstöfunin stendur fyrir Good Game Elliot Rodger. 

Oksiński starfaði sem rennismiður í verksmiðju, hafði einangrast töluvert eftir að skólagöngu hans lauk, var hlédrægur og talaði sjaldan við fólk í nágrenni sínu. Hann hafði áhuga á skotíþróttum og hafði þannig orðið sér úti um byssuleyfi.

Hvaða stjórnmálaskoðanir hafði hann?

Á heimili Oksiński fannst svokallaður Gadsden-fáni, en hann hefur verið notaður af ýmsum hreyfingum í gegnum árin, þar með talið öfgahægrimönnum, frjálshyggjufólki og hópum sem telja sig fótum troðna, en á fánanum er skröltormur ásamt textanum: Ekki stíga á mig.

Eftir því sem leið á vikuna greindu yfirvöld einnig frá því að Oksiński hefði leitað sér upplýsinga um norska fjöldamorðingjann Anders Breivik á netinu og að fleiri vísbendingar hefðu fundist sem þykja tengja skotmanninn við hægriöfgahyggju.

Fjölmiðlar greindu frá því í gær að Oksiński hefði tilheyrt hóp á netinu sem er kallaður Samfélag sannra sakamála (e. true crime community) en þar koma saman einstaklingar sem eru heillaðir af morðingjum. Mun hann hafa spilað tölvuleiki ásamt fleirum þar sem hryðjuverkaárásir voru sviðsettar. Heimildarmenn innan pólsku leyniþjónustunnar munu hafa upplýst að Oksiński birti hatursfulla brandara á netinu, svo sem í garð kaþólsku kirkjunnar, hinsegin samfélagsins og um stjórnmálamenn úr ýmsum áttum. Hann hafi fylgst með aðgöngum á samfélagsmiðlum sem fóru fögrum orðum um Adolf Hitler og deildi sjálfur efni um hryðjuverkamanninn Ted Kaczynski sem er betur þekktur sem Unabomber.

Eftir árásina birtust myndir á samfélagsmiðlum sem voru sagðar sanna að skotmaðurinn hafi í raun verið vinstriöfgamaður en myndirnar reyndust ýmist falsaðar, breyttar eða birtar í röngu samhengi. Fljótlega eftir árásina ákvað Meta að fjarlægja Facebook-síður sem voru taldar tilheyra Oksiński en það gaf samsæriskenningum byr undir báða vængi og gerði að verkum að erfitt var að átta sig á því hvort myndirnar í dreifingu væru í raun og veru teknar frá Facebook-síðunum.

Blaðamanni tókst þó að finna skjáskot sem aðilar sem áttu sameiginlega vini með skotmanninum náðu af tveimur Facebook-síðum áður en þeim var lokað. Þar er lítið að sjá annað en örfáar myndir sem var deilt fyrir nokkrum árum.

Hæddist hann að trúarbrögðum?

Ein mynd sem átti að sanna að Oksiński hafi hæðst að kaþólsku kirkjunni sýndi hendur halda á útprentaðri mynd af páfanum, Jóhannesi Páli II og Harnaś-bjórflösku. Myndin er þó ekki komin frá skotmanninum. Hún hefur árum saman verið í dreifingu á netinu og tilheyrir internetgríni sem hefur notið vinsælda meðal ungra Pólverja í rúman áratug. Grínið kallast cenzopapa og snýst um að gera grín að Jóhannesi Páli II. Brandararnir voru ákveðin yfirlýsing fyrst þegar þeir fóru að birtast en bitið fór svo hægt og rólega úr hæðninni.

Var hann hinsegin?

Önnur mynd í dreifingu var sögð sýna skotmanninn í einkennisbúningi, með gasgrímu og regnbogafána. Þeir sem dreifðu upplýsingaóreiðu sögðu þetta sanna að Oksiński hefði verið hinsegin og þar með vinstrimaður.

Myndin kom ekki af Facebook og ber með sér að vera skjáskot úr einhvers konar fjarfundabúnaði, en fyrrum skólafélagar hafa lýst því að Oksiński hafi stundum verið með gasgrímu þegar kennslustundir fóru fram í gegnum netið á tímum COVID.

Sannar myndin í rauninni það eitt að Oksiński hafi haldið á fána? Án samhengis er ekkert hægt að fullyrða um þýðinguna. Var hann að hæðast að hinsegin fólki? Það gæti vel verið, en fyrir nokkrum árum höfðu aðilar í Póllandi hæðst að hinsegin samfélaginu með því að klæðast sóttvarnabúnaði og tala um hinseginleika sem plágu sem þyrfti að verjast. Var hann að lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk? Það gæti líka verið, enda vantar allt samhengi í myndina.

Var hann kommúnisti?

Það eru ekki bara gervigreindarmyndir í dreifingu heldur má þar finna raunveruleg skjáskot af Facebook. Eitt þeirra sýnir orðaskipti milli Oksiński og Facebook-vinar og þar virðist skotmaðurinn lýsa því yfir að hann sé kommúnisti. Þegar orðaskiptin eru skoðuð í réttu samhengi kemur þó á daginn að þarna var um grín að ræða sem tengdist því að skotmaðurinn deildi mynd af sér með rauðri lýsingu.

Kemur eitthvað annað til greina?

Undanfarin ár hefur það verið tilhneiging að freista þess að tengja hryðjuverk eða fjöldaárásir við pólitíska hugmyndafræði. Netverjar kemba samfélagsmiðla skotmanna og leggja mikið í að grafa upp hvaðeina sem gæti fært rök fyrir því að þeir hafi tilheyrt vinstri- eða hægrihópum.

Á síðasta ári byrjaði bandaríska alríkislögreglan þó að tala um aðra tegund ofbeldisverka, ofbeldisöfgahyggju (e. nihilistic violent extremism). Um er að ræða nýlegt og umdeilt regnhlífarhugtak um ofbeldi þar sem mannhatur, eyðileggingarhvöt og þrá eftir frægð eða stöðu innan jaðarhópa á netinu virðast vega þyngra en pólitískar skoðanir eða trúarbrögð.

Þetta eru ofbeldisbrot sem eiga fyrst og fremst rætur að rekja til haturs og heiftar í garð samfélagsins og vilja til að valda glundroða og óreiðu.

Undir hugtakið falla margir hópar, svo sem frægi ofbeldishópurinn 764 sem hefur verið að kúga börn til ofbeldisverka og systurhópur hans Manic Murder Cult. Eins telja sumir að hugtakið nái einnig til hópa sem tilheyra svokölluðu jaðarhveli (e. edgesphere), eins og Samfélags sannra sakamála, Incel-hópa og svokallaðra Larpercore-hópa sem stunda netníð, stafrænt einelti, dreifa persónuupplýsingum (e. doxxing) og siga sérsveitinni á óvini sína.

Hópurinn Maniac Murder Cult hefur einmitt verið áberandi í Austur-Evrópu. Hópurinn hefur verið rakinn til Úkraínu en færði hratt út kvíarnar til Rússlands og Vestur-Evrópuþjóða. Hann hefur verið tengdur við árásir í Kanada, Svíþjóð, Rúmeníu, Bandaríkjunum, Úkraínu og Rússlandi. Hópurinn trúir því að tækniframfarir, samfélagsbreytingar og kapítalismi muni á endanum rústa núverandi heimsmynd og vill flýta fyrir því ferli.

Varar við einfarahryðjuverkum

Hér verður ekki fullyrt að Oksiński hafi tilheyrt hópi sem telst til ofbeldisöfgahyggju en hann hefur þó verið tengdur við samfélag sem er talið falla þar undir, Samfélag sannra sakamála. Hann virðist deila einkennum með aðilum sem eru taldir keyrðir áfram af öfgum sem eiga ekki endilega rætur að rekja til pólitískra skoðana heldur frekar af afstöðu til samfélagsins, eins og t.d. Elliot Rodger sem var reiður út í konur sem hann taldi hafa hlunnfarið sig.

Skotmenn sem falla undir ofbeldisöfgahyggju hafa gert það undir ýmsum formerkjum. Fimmtán ára stúlka í Wisconsins framdi skotárás og skildi eftir manifesto þar sem hún kallaði „Stríð gegn mannkyninu“ þar sem hún lýsti mannkyninu sem „sora“. Tuttugu og fjögurra ára gamall maður í Nashville hafði skipulagt árás á fjarskiptainnviði í von um að það myndi marka „upphaf endalokanna... fyrir hinn samtengda og að öðru leyti hnattvædda heim“. Hinn 25 ára gamli Guy Edward Bartkus sprengdi sjálfan sig í loft upp fyrir utan tæknifrjóvgunarstofu því hann var á móti barneignum og taldi að engin manneskja ætti að þurfa að þola það að fæðast í þennan heim án þess að hafa samþykkt það.

Þessir aðilar eiga það gjarnan sameiginlegt að upplifa sig utangarðs. Þeim hefur gengið illa að aðlagast samfélaginu og taka því fagnandi þegar þeir finna stað í netheimum þar sem þeir fá viðurkenningu. Stundum kemur viðurkenningin frá aðilum sem deila heift þeirra, en í öðrum tilvikum hitta þeir fyrir einstaklinga sem vilja notfæra sér þessa heift í sínum eigin tilgangi. Ofbeldisverkin eiga sér stundum líka bara rætur að rekja til þess að aðilar sem telja sig hlunnfarna, að þeir séu ósýnilegir öðrum, ákveða að verða alræmdir og sækja sér þá innblástur til frægra morðingja.

Eins og áður segir er hugtakið umdeilt en það hefur þó komið til umræðu í tengslum við skotárásina í Kraká. Polskieradio ræddi við fyrrverandi yfirmann pólsku leyniþjónustunnar, Grzegorz Małecki, sem hefur varað við útbreiðslu „einfarahryðjuverka“ (e. lone wolf terrorism), árása sem hryðjuverkamenn fremja einir síns liðs, án beinna tengsla við hryðjuverkasamtök. Ekki sé rétt að líta á harmleikinn í Kraká sem einangrað ofbeldisbrot heldur þurfi að horfa á þetta í samhengi breytts eðlis hryðjuverkaógna. Öfgahyggja undir áhrifum áróðurs á netinu og félagslegrar spennu gæti orðið ein helsta áskorunin í þjóðaröryggi Póllands.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅