Hofið hans Skúla „fógeta“

Skúli lét byggja hof, eða kirkju, áður en hann kvæntist Grímu Björg Thorarensen í Hvammsvík. Ljósmynd/Saga Sig

Skúli Mogensen er með endalausar hugmyndir um hvernig megi þróa Hvammsvíkina þar sem hann rekur baðlón og ferðaþjónustu, en blaðamaður var kominn til að heyra meira um Hof, steinsteyptan stóran skúlptúr sem má nýta á ýmsan hátt og fellur vel inn í landslagið.

„Þegar fjölskyldan stækkaði fór umræðan að snúast um brúðkaup. Ég sagði þá í gríni að við myndum gifta okkur þegar ég hefði efni á því að byggja kirkju handa henni. Gríma hló bara að þessu,“ segir Skúli og nefnir að jörðin er gömul kirkjujörð.

Vildi ekki hefðbundna kirkju

„Ég hef alltaf verið að teikna og skissa og hef mikinn áhuga á allri list; ekki síst byggingarlist. Ég fór að hugsa meir og meir um þessa kirkjupælingu og sá það mjög fljótlega að ég hefði engan áhuga á að byggja hefðbundna kirkju. Ég sökkti mér ofan í sögu Hvammsvíkur sem er landnámsjörð og sem betur fer eru til merkilegar heimildir um staðinn. Fljótlega var ég farinn að grúska í frásögnum af heiðnum hofum og svo þeim miklu breytingum sem urðu þegar kristindómurinn hóf innreið sína á Íslandi,“ segir hann.

Hér sést Hof ofan frá.

Hér sést Hof ofan frá. Ljósmynd/Jón Ragnar

„Mér fannst heillandi að sjá hvernig byggingar og mannvirki hafa tekið breytingum eftir því hver ræður ríkjum hverju sinni. Það eru til magnaðar kirkjur eða hof sem hafa gegnt mismunandi hlutverkum; sú frægasta er líklega Hagia Sophia í Istanbúl sem hefur verið kristin dómkirkja, kaþólsk kirkja og núna moska. Þarna eru kristnar og íslamskar skreytingar hlið við hlið,“ segir hann og að innblásturinn að hofinu hafi komið víða að en þar má kannski helst nefna Pantheon í Róm, sem þýðir einmitt hof allra guða, og svo Church of Light sem arkitektinn Tadao Ando hannaði.

Engar hurðar eða gluggar eru á Hofi.

Engar hurðar eða gluggar eru á Hofi. Ljósmynd/Jón Ragnar

„Mér fannst þetta mjög spennandi og vildi finna leið til að blanda saman sögu Hvammsvíkur frá landnámi við nútímann. Sum hofin voru rifin og endurbyggð sem kirkjur en í sumum tilfellum þjónaði hofið hvorum tveggja trúarbrögðunum. Það er falleg hugsun; að hægt væri að túlka Hof algjörlega eftir manns eigin höfði. Mig langaði að skapa þannig hof, í sátt við umhverfið og náttúruna og þar sem allir væru velkomnir, svo framarlega sem fólk virðir umhverfið og hvert annað á meðan það nýtur Hofsins.“

Opið fyrir veðri og vindum

Hofið reis árið 2025 og var tilbúið fyrir brúðkaupsdaginn 16. ágúst. Skúli bað biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur, að koma og gefa þau saman og vígja hofið í leiðinni. Það var auðsótt mál.

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, gaf Grímu og Skúla saman og vígði hofið í leiðinni. Ljósmynd/Saga Sig

„Ég sagði henni að ég væri að reisa hof sem gæti í raun verið allrahanda hús sem allir mættu túlka eftir sínu höfði. Hún kom og skoðaði og var mjög hrifin og sagði svo fallega að hún myndi mæta 16. ágúst og þann dag myndi hún túlka hofið sem kristna kirkju. Þarna kristallaðist hugmyndafræði mín.“

Ef staðið er í miðju Hofi og horft upp, blasir himinninn við í gegnum op sem minnir á maltneskan kross. Gólfið minnir hins vegar á keltneskan kross. Til þess að kallast á við heiðna trú, er hægt að taka lokið úr miðju krossins og þá birtist eldstæði.

„Mig langaði að kveikja þarna bál þegar við giftum okkur en Gríma var ekki spennt fyrir því að breyta þessu í Game of Thrones-athöfn,“ segir hann og skellir upp úr.

Vildi gera listaverk

Hofið hans Skúla, sem hann hannaði og byggði síðan með aðstoð góðra verkfræðinga og verktaka, hefur vakið mikla athygli og hlotið mikið lof erlendis. Ítarleg umfjöllun birtist í Archdaily sem er virt arkitektavefsíða og í kjölfarið hafa tugir umfjallana birst víða um heim.

„Það er mjög gaman að fá fyrirspurnir frá Kóreu, Indlandi og Suður-Ameríku, svo eitthvað sé nefnt. Bókanir fyrir veislur og brúðkaup eru farnar að streyma inn,“ segir hann.

Hof fellur vel inn í stórbrotið landslagið.

Hof fellur vel inn í stórbrotið landslagið. Ljósmynd/Jón Ragnar

„Ég elska að láta drauma rætast, þó að sumir þeirra þjóni engum tilgangi í hefðbundnum skilningi. En ánægjan sem fór í að hanna þetta og sjá Hofið svo verða að veruleika og gifta sig í því er ómetanlegt,“ segir hann.

„Það fóru 43 tonn af járnabindingu og 220 rúmmetrar af gæðasteypu í það og ég vona að Hofið standi í fimm hundruð ár, viðhaldsfrítt. Þetta á að veðrast og vera hluti af landslaginu. Rollurnar hafa fundið skjól þarna, en þetta er opið öllum, mönnum og dýrum. Hofið er vonandi það fyrsta af mörgu; ég er búinn að rissa upp alls konar hús, upplifanir og íverustaði sem eiga að rísa þarna. Ég enda á að búa til þorp, lýsa yfir sjálfstæði og verð þá Skúli fógeti í Hvammsvík,“ segir Skúli og hlær dátt.

Ítarlegt viðtal er við Skúla í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅