„Ef við spilum hraðan bolta þá tökum við þær“
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Svisslendingum í undankeppni EM kl. 16:00 í dag. Leikurinn fer fram í Ólafssal á Ásvöllum og má búast við hörkuleik. Bæði liðin unnu leiki sína í fyrstu umferð riðilsins. Pekka Salminen þjálfari íslenska liðsins hafði þetta að segja um leikinn gegn Sviss.
Svissneska liðið er mun sterkara
„Við vissum lítið um írska liðið áður en við mættum því. Það er ekki sömu sögu að segja af Svisslendingum þar sem við höfum náð að kynna okkur þeirra leik og vitum hverju við þurfum að breyta til að vera sem best undirbúin fyrir leikinn gegn þeim.
Svissneska liðið er líkamlega mun sterkara lið og við þurfum að hreyfa boltann mun hraðar gegn því en við gerðum gegn Írlandi því það þýðir ekkert að fara í einn á einn gegn þeim,“ sagði Pekka.
Hverjir eru möguleikar Íslands gegn Sviss?
„Eins og ég sagði þá eru þær sterkar og ef við spilum hraðan bolta þá tökum við þær. Við þurfum að spila háa pressuvörn allan tímann og ef okkur tekst það og að halda þeim frá körfunni þá veit ég að við vinnum.“
Leikur Sviss og Aserbaídsjan enginn mælikvarði á styrk Sviss
Eftir að hafa horft á leik Sviss og Aserbaídsjan, fannstu veikleika á svissneska liðinu?
„Sá leikur er í raun enginn mælikvarði á styrkleika Sviss því hann var þeim það auðveldur. VIð þurfum hins vegar að gera það sem við kunnum og getum sem er að spila boltanum hratt, mæta af fullum krafti og pressa þær ofarlega á vellinum,“ sagði Pekka í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗