NATÓ íhugar að koma upp skriðdrekavörnum við rússnesku landamærin
Rússar eru farnir að fylla á birgðageymslur hersins að sögn finnska hershöfðingjans Pasi Välimäki. Finnar horfa til reynslu Úkraínumanna af að verjast innrás rússneska hersins þegar kemur að því að víggirða 1.340 kílómetra löng landamæri Rússlands og Finnlands.
Í samtali við Bloomberg sagði Välimäki að hinar „miklu úkraínsku varnarlínur“ og skriðdrekavarnir hafi hjálpað til við að hægja á sókn Rússa.
„Aðstæðurnar í Finnlandi eru meiri áskorun,“ sagði hann einnig.
Hann sagði að Rússar séu byrjaðir að endurbyggja her sinn og fylla á vopnageymslur og birgðageymslu með skriðdrekum, brynvörðum ökutækjum og fleiru.
Hann benti á að Finnar geti ekki komið í veg fyrir að Rússar endurvopnist en markmið þeirra sé að búa til „hindrun“ þannig að Rússar geti ekki komist inn í Finnland eða önnur aðildarríki NATÓ.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗