Stórsigur HK í Kórnum

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir sækir að marki Gróttu í dag.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir sækir að marki Gróttu í dag. mbl.is/Anton Brink

HK vann stórsigur á Gróttu, 27:17, í níundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í Kórnum í Kópavogi í dag. 

HK fór upp fyrir Gróttu með sigrinum og er nú með fjögur stig í áttunda sæti. Grótta er með jafnmörg stig í níunda. 

HK var sex mörkum yfir í hálfleik, 14:8, og jók forskot sitt í þeim seinni. 

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoraði sex mörk fyrir HK en Danijela Sara B. Björnsdóttir fór mikinn í marki HK-inga og varði 14 skot. Eva Björk Davíðsdóttir skoraði sjö fyrir Gróttu. 

Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 6, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 5, Hekla Sóley Halldórsdóttir 4, Sóley Ívarsdóttir 4, Leandra Náttsól Salvamoser 3, Rakel Sara Ægisdóttir 1, Jóhanna Lind Jónasdóttir 1, Auður Guðmundsdóttir 1, Katrín Hekla Magnúsdóttir 1, Þórhildur Braga Þórðardóttir 1.

Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 14 (45%). 

Mörk Gróttu: Eva Björk Davíðsdóttir 7, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 4, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Ída Margrét Stefánsdóttir 1, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 1, Elsa Björg Guðmundsdóttir 1, Svandís Birgisdóttir 1.

Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 6 (27%), Anna Karólína Ingadóttir 3 (21%).

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅