102 ára afi og 89 ára amma slá í gegn á TikTok

Það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt, eins og þessi krúttlega kennslustund sýnir. Samsett mynd

TikTok-myndskeið þar sem samfélagsmiðlastjarna að nafni Francesca Rietti kennir 102 ára afa sínum og 89 ára ömmu sinni að panta mat í gegnum Uber Eats hefur vakið mikla athygli í netheimum og brætt hjörtu fólks víðs vegar um heim.

Rietti birti myndskeiðið fyrr á árinu og hefur það fengið yfir 36 milljónir áhorfa og vakti einnig athygli blaðamanns People, Chiöru Kim, sem skrifaði grein sem birtist á slúðursíðunni þann 10. nóvember.

Í myndskeiðinu situr Rietti á milli afa síns og ömmu fyrir framan tölvuna þegar hún býður þau hjartanlega velkomin á það sem hún kallar „Uber Eats fyrir byrjendur“. 

Amman, sem er spennt að læra, er með blað og blýant og glósar á meðan Rietti sýnir þeim hvernig þau opna síðuna, velja veitingastað og ganga frá pöntun.

„George, sérðu þetta?“ heyrist hún spyrja eiginmann sinn þegar vefsíðan birtist á skjánum.

Þegar hann segist ekki sjá það svarar hún: „Uber Eats, það er efst uppi.“

Í lok kennslustundarinnar leggur Rietti próf fyrir þau og biður þau að láta sem þau ætli að panta sér steik.

Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við færsluna og Rietti hefur síðan birt fleiri myndskeið af hjónunum. Í júlí greindi hún frá því að þau hefðu pantað sjálf í fyrsta sinn. Í myndskeiði frá því í október sýnir amman svo afganga af taílenskum mat sem þau höfðu pantað í gegnum Uber Eats.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅