Ingólfur minnist Guðjóns Þórðarsonar og rembingskossins
Þjóðin minnist nú með hlýhug og harmi knattspyrnuþjálfarans sigursæla Guðjóns Þórðarsonar sem lést aðfaranótt föstudags eftir veikindi.
Sjá einnig: Guðjón Þórðarson er látinn
Meðal þeirra sem skrifa eftirmæli um Guðjón er Ingólfur Hannesson, fyrrverandi íþróttafréttamaður á RÚV. Guðjón náði frábærum árangri sem þjálfari, ekki síst með íslenska karlalandsliðið. Meðal margra frækilegra úrslita voru 1-1 jafntefli gegn ríkjandi heimsmeisturum Frakka, á Laugardalsvellinum. Ingólfur fékk Guðjón þá í viðtal eftir leik og gat ekki stillt sig um að smella kossi á þjálfarann, sem brást undrandi við. Kossinn er líklega einn sá frægasti ef ekki sá frægasti sem birst hefur á sjónvarpsskjám landsmanna.
Ingólfur segir Guðjón hafa verið einn eftirminnilegasta karakterinn sem hann kynntist í starfi sínu sem íþróttafréttamaður. Hann birti eftirfarandi færslu á Facebook:
"Þú segir nokkuð", sagði Guðjón Þórðarson við mig þegar við hittumst fyrir tilviljun á Gatwick flugvellinum fyrir rúmum 20 árum. Hann á leiðinni heim úr enn einu ævintýrinu á Englandi og ég í viðskiptaferð á vegum Eurovision Sport. Tilefni orðanna var að eftir langt fótbolta spjall sagði ég honum uppúr þurru, að mér hefði alltaf fundist að hann hefði átt að verða prestur þar sem sannfæringarkrafturinn væri slíkur að ekkert stæði í vegi fyrir honum, manninum sem gat fengið venjulega gutlara til að vaða fyrir hann eld og brennistein og þannig verða að alvöru fótboltamönnum. Hann hnussaði, snéri sér síðan an mér og sagði ofangreint: "Já, þú segir nokkuð". Búið spil og útrætt.
Nokkrum árum áður, eða 1998 höfðu leiðir okkar legið saman enn eina ferðina, en eftirleikurinn varð sannarlega eftirminnilegur þar sem ég smellti á hann "einum digrum", eins og ég orðaði það sjálfur í viðtali við RÚV fyrir 7 árum , https://www.ruv.is/.../ingolfur-rifjar-upp-rembingskossinn Með Guðjóni Þórðarsyni er genginn einstakur einstaklingur, sá harðasti á vellinum og utan hans, sló aldrei af kröfum og gekk hreint og beint til verks. Árangurinn ótrúlegur og engum tilviljunum háður, að sögn Guðjóns. Hafði óbilandi trú á öllum verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur. Einn eftirminnilegasti karakter sem ég hitti á þessum árum íþróttafréttamennskunnar. Fjölskyldu hans og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗