Ég var bara barn

„Ég var bara barn og gat ekki mótmælt lækni,“ segir Arnaq Johansen en hún er ein þúsunda grænlenskra kvenna sem sett var í lykkja í herferð dönsku ríkisstjórnarinnar á sjöunda áratugnum. ​

Á sjöunda áratugnum hófu dönsk yfirvöld umfangsmikla herferð þar sem lykkjur voru settar upp í þúsundir grænlenskra kvenna, án samþykkis eða vitundar þeirra, til að takmarka barneignir. Markmiðið var meðal annars að draga úr fólksfjölgun á Grænlandi.

Arnaq Johansen var ein þessara stúlkna, en sumar þeirra voru aðeins 12-13 ára gamlar og höfðu ekki einu sinni byrjað á blæðingum. Afleiðingarnar hjá Arnaq urðu alvarlegar og hún gat síðar meir ekki eignast börn. Arnaq hefur nú skrifað bókina Uangaana Timiga, Þetta er líkami minn, þar sem hún segir frá sinni reynslu og níu annarra kvenna. Hún verður gestur á Bókahátíð Félags íslenskra bókaútgefenda sem haldin verður dagana 21.-22. nóvember í Hörpu.

Hélt að ég væri sú eina

Naja Lyberth sagði fyrst opinberlega frá reynslu sinni í færslu á Facebook árið 2017. Hún hafði fengið lykkju uppsetta þegar hún var 14 ára, án samþykkis síns eða foreldra sinna. Hún hafði þagað um reynsluna í meira en 40 ár, en frásögn hennar varð upphafið að því að aðrar konur fóru að segja frá svipuðum upplifunum og árið 2022 fóru fjölmiðlar að rannsaka málið. Stofnaður var Facebook-hópur og í kjölfarið sérstakur stýrihópur undir forystu Naju. Árið 2024 fóru konurnar í mál við danska ríkið.

Arnaq er ein þeirra kvenna sem þögðu þunnu hljóði áratugum saman en stíflan brast árið 2021 þegar hún sá sjónvarpsþátt þar sem Naja sagði frá reynslu sinni.

„Þá leit ég á manninn minn og sagði honum að ég hefði líka fengið mína fyrstu lykkju þegar ég var 12 ára. Ég brast í grát, eins og loftið væri að fara úr blöðru. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sagði öðrum frá þessu. Síðan þá hef ég verið meðlimur í hópnum og setið í stjórn hans allan tímann. Enn þann dag í dag er ég meðlimur og starfa sem hægri hönd Naju,“ segir Arnaq.

„Þegar ég gekk í hópinn sá ég að þar voru mjög margar konur sem höfðu fengið lykkjuna ungar að árum, án samþykkis síns eða foreldra sinna. Ég varð fyrir áfalli, varð sorgmædd og mjög reið. Ég hafði alltaf haldið að ég væri sú eina sem hefði fengið lykkju aðeins 12 ára gömul,“ segir hún.

Yfir 4.500 stúlkur 

Arnaq rifjar upp þegar hún fór ein á læknastofuna árið 1978.

„Ég man ekki hvers vegna ég þurfti að fara til læknis, en það var ekki vegna lykkjunnar. Ég vissi ekki einu sinni hvað lykkja var á þessum tíma. Læknirinn sagði mér heldur ekki hvað hann hafði gert mér. Ég var bara barn og gat ekki mótmælt lækni. Ég var ekki einu sinni byrjuð að hafa blæðingar. Þess vegna hélt ég að ég væri sú eina sem hefði lent í þessu. En það kom í ljós að það var fjöldi ungra stúlkna sem hafði verið beittur sömu meðferð og ég,“ segir Arnaq.

„Við í stjórninni teljum að konurnar sem fengu lykkju hafi verið mun fleiri en 4.500. Árið 2023 höfðum við, ásamt lögfræðingi okkar Mads Pramming, stefnt danska ríkinu og krafist bóta. Við vorum þá 143 konur, þótt miklu fleiri hefðu getað tekið þátt í málsókninni. Við ákváðum hins vegar að ef við myndum vinna málið fyrir dómi ættu aðrar konur einnig að fá að fylgja í kjölfarið. Í september 2025 bað forsætisráðherra Danmerkur okkur afsökunar. Í kjölfarið samþykkti danska þingið ný lög sem gera konum, þar á meðal þeim sem ekki tóku þátt í málsókninni, kleift að sækja um bætur,“ segir hún.

„Við konurnar 143 náðum síðan samkomulagi við danska ríkið í ágúst 2026. Mér er kunnugt um að margar konur hafi sem betur fer þegar fengið greiddar bætur.“

Ítarlegt viðtal er við Arnaq í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅