Eyjakonur stöðvuðu sigurgöngu Hauka
Haukar töpuðu sínu fyrsta stigi í úrvalsdeild kvenna í handbolta í níundu umferðinni gegn ÍBV á Ásvöllum í dag.
Leiknum lauk með 31:31-jafntefli en eftir leik eru Haukakonur með 17 stig í toppsætinu en ÍBV er í öðru sæti með fimmtán.
Eyjakonur voru marki yfir í hálfleik, 15:14, og var áfram jafnræði á milli liðanna í þeim seinni.
Haukar voru tveimur mörkum yfir þegar mínúta var eftir af leiknum en Eyjakonan Amelía Dís Einarsdóttir skoraði síðustu tvö mörk leiksins og tryggði ÍBV stig.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka en Andrea Jacobsen skoraði tíu mörk og Sandra Erlingsdóttir átta fyrir ÍBV.
Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 7, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 6, Embla Steindórsdóttir 6, Berta Rut Harðardóttir 5, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 2, Sara Marie Odden 2, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 11 (295), Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 3 (43%).
Mörk ÍBV: Andrea Jacobsen 10, Sandra Erlingsdóttir 8, Amelía Dís Einarsdóttir 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 1.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 7 (23%), Cornelia Linnea J Hermansson 4 (33%).
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗