„Engar bókanir hjá okkur varðandi óhöpp“

Gul veðurviðvörun er í gildi á Austfjörðum.

Gul veðurviðvörun er í gildi á Austfjörðum. mbl.is/RAX

Það hefur verið tíðindalaust hjá lögreglunni á Austurlandi þrátt fyrir óveður sem gengið hefur yfir síðan í gær að sögn Kristjáns Ólafs Guðnasonar yfirlögregluþjóns.

„Þetta hefur farið yfir okkar megin án stórra atburða. Það eru engar bókanir hjá okkur varðandi óhöpp eða slíkt sem tengjast veðrinu,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Á Austfjörðum er í gildi gul veðurviðvörun með norðvestan 15-23 m/s og skafrenningi. 

Heilt yfir rólegt hjá björgunarsveitum landsins

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, tekur í sama streng í samtali við mbl.is og bætir við að veginum yfir Fjarðarheiði hafi verið lokað en á vef Vegagerðarinnar segir að á Austfjörðum megi búast við lélegu skyggni og erfiðri færð.

Að auki segir hann að heilt yfir hafi verið rólegt hjá björgunarsveitum landsins frá því í morgun.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅