Stjórnin geti ekki ráðið nýjan forstjóra
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, telur ekki hægt að sætta sig við að stjórn Landsvirkjunar ráði nýjan forstjóra á meðan stjórnarhættir fyrirtækisins séu til skoðunar og ósvarað sé mikilvægum spurningum um brotthvarf Harðar Arnarsonar. Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins, segir nýjan forstjóra jafnframt geta lent í erfiðri stöðu gagnvart stjórninni.
Upplausnarástand hefur skapast í yfirstjórn Landsvirkjunar, langverðmætasta fyrirtækis landsins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/María Matthíasdóttir
Nafnleynd í ferlinu
Þetta kemur fram í samtali þeirra í Spursmálum. Björn Ingi gagnrýnir þar að ráðningarferlið haldi áfram við núverandi aðstæður. Hann bendir á að stjórnin ætli ekki að birta nöfn umsækjenda.
„Stjórn sem nýtur ekki trausts, ráðherra sem er í miklum vandræðum og rær lífróður […] en þau ætla samt að ákveða hver verður forstjóri stærsta fyrirtækis til langrar framtíðar,“ segir Björn Ingi og bætir við að hann telji ekki hægt að sætta sig við það.
Ráðning „í skjóli myrkurs“
Björn Ingi varpar fram þeirri spurningu hvað gerist ef frekari upplýsingar leiði til þess að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þurfi að víkja. Þá kunni stjórnin sem hann skipaði þegar að hafa gengið frá ráðningu nýs forstjóra.
Hann lýsir því sem ráðningu „í einhvers konar skjóli myrkurs“ eftir að stjórnin hafi, að hans mati, hrakið farsælan forstjóra frá fyrirtækinu. Hörður hafi áður starfað með mörgum ríkisstjórnum, fjármálaráðherrum og stjórnum án sambærilegra vandræða.
Andrés tekur undir áhyggjur af trausti á ráðningarferlinu. Jafnvel þótt niðurstaðan yrði sú að allt hefði verið með felldu þyrfti fyrirtækið einnig að hafa ásýnd trausts og trúverðugleika.
Hann leggur áherslu á að Landsvirkjun sé fyrirtæki í viðkvæmri stöðu sem skipti alla landsmenn miklu máli. Starfsemin snerti atvinnuþróun víða um land og daglega velsæld landsmanna. Því séu hagsmunirnir af því að traust ríki um fyrirtækið miklir.
Í hvaða stöðu verður nýr forstjóri?
Andrés spyr hvernig samband nýs forstjóra við stjórnina verði eftir það sem fram hafi komið um starfshætti hennar. Hann vísar til funda án forstjóra og þess að sagt hafi verið að stjórnin hafi rætt við viðskiptamenn fyrirtækisins og hagaðila.
„Í hvaða stöðu er hann gagnvart þessari stjórn og í hvaða stöðu er stjórnin gagnvart honum?“ spyr Andrés.
Hann veltir fyrir sér hvort nýr forstjóri geti komið inn og sett skýr mörk um verkaskiptinguna eftir að stjórnin hafi ráðið hann til starfa. Jafnvel þótt takist að finna afar hæfan einstakling standi eftir spurningar um starfsskilyrði hans og samskiptin við stjórnina.
Björn Ingi segir ráðherrann hafa úrræði til að bregðast við stöðunni.
„Hann getur auðvitað skipt stjórninni út. Hann getur einfaldlega sagt að ráðning nýs forstjóra í þessu fyrirtæki verði að vera hafin yfir allan vafa,“ segir hann og leggur áherslu á að ráðningin verði að njóta trausts.
Hann telur jafnframt að Samfylkingin og Viðreisn hefðu brugðist hart við sambærilegu máli ef það hefði komið upp á vakt Sjálfstæðisflokksins. Sömu kröfur um fagmennsku og ábyrgð verði að gilda nú.
Andrés segir ábyrgðina á endanum liggja hjá ráðherranum. Það sé hann sem eigi að skakka leikinn ef þörf krefji.
Viðtalið við Björn Inga og Andrés má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
