Þetta eru dýrustu og ódýrustu jólatónleikarnir í ár

Að fara á jólatónleika er orðin ómissandi hefð hjá mörgum Íslendingum og sumir komast ekki almennilega í jólaskapið fyrr en þeir hafa farið á eina slíka. En í dýrtíð eins og nú er það langt frá því að vera ókeypis skemmtun.

Jólatónleikar eru misstórir og íburðamiklir og vitaskuld eru miðarnir misdýrir. DV renndi yfir sviðið og athugaði hvar dýrustu miðana er að finna og þá ódýrustu.

Komdu um jólin

Dýrustu miðana er hægt að finna á tónleikunum Komdu um jólin í Eldborgarsal Hörpu. Þar koma fram Birgitta Haukdal, Stefán Hilmarsson, Ragga Gísla, Klara Elías, Klara Einars, Magni, Gunnar Óla og Vignir Snær. Verðbilið á þessum stjörnuprýddu tónleikum er hins vegar mjög breytt.

Eldborgarsalur Hörpu. Tvær sýningar 5. desember

Verð: 6.900 – 18.900 krónur

Jülevenner Emmsjé Gauta

Næst dýrustu miðana má finna í Breiðholtinu þar sem rapparinn Emmsjé Gauti treður upp ásamt tvíeykinu Úlfi Úlfi, Daníel Ágústi, Saint Pete og fjölda leynigesta. Emmsjé býður hins vegar upp á sérstaka fjölskyldusýningu, styttri útgáfu þar sem verðið er mun lægra.

ÍR heimilið. 18.-20. desember

Fjölskyldusýning: 5.990 - 8.990 krónur

Almennar sýningar: 10.990 – 15.990 krónur

Vitringarnir 3

Það er viðeigandi að Vitringarnir 3 séu í þriðja sæti. Sýningin þeirra Eyþórs Inga, Friðriks Ómars og Jógvan Hansens hefur slegið í gegn og eru nú hvorki meira né minna en 20 viðburðir skráðir í Silfurbergi í Hörpu, margir af þeim uppseldir.

Silfurberg í Hörpu. 27. nóvember til 22. desember

14.999 krónur

Jólatónleikar Baggalúts

Fáir eru jafn sjóaðir í jólatónleikabransanum og Baggalútsmenn. Þeir troða upp sex sinnum í Háskólabíó og tvisvar í Hofi á Akureyri þetta árið ásamt góðum gestum.

Hof Akureyri. 27. – 28. nóvember

Háskólabíó. 5. - 19. desember

13.990 krónur

Kósý jól með Siggu Beinteins

Sigga Beinteins mun syngja sín helstu jólalög ásamt vel völdum jólaperlum í Lindakirkju. Með henni verða hljóðfæraleikarar sem hafa leikið með henni um árabil.

Lindakirkja. 12. desember

12.990 krónur

Jólaljós - Hátíðartónleikar Ara Ólafs og Dísellu

Óperusöngvararnir Ari Ólafsson og Dísella Lárusdóttir flytja saman klassíska tónlist ásamt sígildum jólalögum í Norðurljósasal Hörpu.

Norðurljós í Hörpu. 13. desember

10.990 – 12.990 krónur

Jólin enn á ný með Margréti Eir

Að fara á tónleika hjá Margréti Eir er orðinn fasti í jóladagskránni hjá mörgum. Í þetta skipti eru jólatónleikar hennar jafn framt útgáfutónleikar nýrrar plötu sem hún flytur ásamt hljómsveit.

Salurinn í Kópavogi. 3. desember

11.250 – 12.500 krónur

GDRN og Magnús Jóhann - Jólatónleikar á Þorláksmessu

Í þriðja skiptið troða söngkonan GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann upp á jólatónleikum. En þau hafa einnig gefið út tvær hljómplötur saman.

Háskólabíó. 23. desember

6.990 – 11.990 krónur

Í syngjandi jólasveiflu - Jólalög Geirmundar Valtýssonar

Á þessum tónleikum flytja söngvararnir Ari Jónsson, Berglind Björk Jónasdóttir, Daníel E Arnarsson og Heiða Ólafsdóttir jólalög eftir skagfirska sveiflukónginn Geirmund Valtýsson.

Salurinn í Kópavogi. 5. desember

9.900 – 10.900 krónur

Sígild jól

Á þessum jólatónleikum koma fram óperusöngvararnir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir,

Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) og Gissur Páll Gissurarson ásamt hljóðfæraleikurum og flytja blöndu jólasöngva og sálma, íslenskra og erlendra. 

Seltjarnarneskirkja. 4. desember

9.800 krónur

Hátíðartónleikar Bríetar

Poppstjarnan Bríet mun flytja nokkur af sínum uppáhalds jólalögum í bland við eigin tónlist.

Sjálfsstæðissalurinn (Gamla NASA). 18. desember

9.500 krónur

Freyðijól

Jólakabarett MC Gunnellu Hólmarsdóttur ásamt Önnu Margrétti Káradóttur, Svölu Björgvinsdóttur, Love Guru og hljóðfæraleikurum.

Austurbæjarbíó. 4. desember

8.990 krónur

Geir Ólafs - Las Vegas Christmas Show

Að þessu sinni eru það Pálmi Gunnarsson, Eiríkur Hauksson, Richard Scobie, Arney Ingibjörg, Helga Möller og Rúnar Þór sem syngja með Geir á hans árlegu jólasýningu sem er sú ódýrasta af stóru jólatónleikunum. Hægt er hins vegar að bæta við mat og fordrykk til að fá almennilegt jóla dinner and show.

Gamla bíó. 3.-6. desember

6.900 krónur

(með mat og fordrykk 19.500 krónur)

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅