„Góð orka og samhedni í íslenska liðinu“

Rebekka Rut Steingrímsdóttir.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir. Ljósmynd/FIBA

„Sviss á að vera hörkulið. Þær unnu stóran sigur á Aserbaídsjan. Sviss spilar líka mjög ólíkan körfubolta og Írland þannig að við búumst við hörkuleik,“ sagði Rebekka Rut Steingrímsdóttir, landsliðskona í körfubolta, þegar mbl.is ræddi við hana fyrir leik Íslands og Sviss í undankeppni EM í körfubolta sem fer fram í dag.

„Það er rosalega góð orka og samheldni í íslenska liðinu og sigurinn gegn Írlandi gaf okkur góð fyrirheit um framhaldið þannig að við erum mjög tilbúnar og spenntar að spila gegn Svisslendingum,“ sagði hún.

Er eitthvað sem þú vilt að íslenska liðið geri betur í leiknum gegn Sviss ef þú ferð yfir fyrri leik liðsins gegn Írlandi?

„Við þurfum að hreyfa boltann meira og fækka töpuðum boltum. Við verðum að laga það og mæta til leiks af fullum krafti.“

Eruð þið vel undirbúnar fyrir Svisslendingana í ljósi þess að þær eru mun sterkari líkamlega en t.d. írska liðið?

Já, við erum að undirbúa okkur vel fyrir breyttar áherslur og vitum af þeirra styrkleikum. Við þurfum að hreyfa okkur hraðar og spila boltanum hraðar í ljósi þess að það þýðir minna að ráðast á þær þar sem þær eru stórar og sterkar.“

Hvernig er undirbúningnum háttað milli leikja? Er mikið farið í kerfi eða snýst allt um endurheimt?

„Fyrir leikinn gegn Írlandi var mikið æft í kerfum og farið yfir leikskipulagið. Núna er stutt á milli leikja og þá hugsum við mikið um endurheimt og tökum síðan smá upprifjun fyrir leikinn á síðustu æfingunni fyrir leik.“

Eru allir klárir fyrir leikinn gegn Sviss?

„Það eru allir í hópnum klárir í leikinn og það kom ekkert upp á í leiknum á móti Írlandi. Við erum vel stemmdar fyrir leikinn og tilbúnar að stíga upp í ljósi þess að við erum að spila án Danielle Rodriguez, Þóru Jónsdóttur og Sigrúnar Bjargar Ólafsdóttur.“

Hver verður lykillinn að því að vinna Sviss?

„Hausinn uppi, vera sterkar og ákefð, hraði og gott samspil munu koma okkur mjög langt í þessum leik,“ sagði Rebekka Rut í samtali við mbl.is

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅