Ólst upp á mjög afskekktum stað

Hjörtur Matthías Skúlason sýnir ný verk á sýningunni Fitjar í SIND við Hringbraut 122. Þar dregur hann fram á óhefðbundinn hátt myndir af stráum við mismunandi birtuskilyrði og sýnir þau í nýju ljósi. Hver mynd fangar ákveðna stemningu og stund í tilvist stráa með skírskotun til manneskjunnar.

Á sýningunni má sjá óhefðbundnar myndir af stráum en hver mynd fangar ákveðna stemningu. Sýningin stendur til 21. nóvember. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Alltaf unnið með eigið líf

„Allan minn feril hef ég unnið með mitt eigið líf og upplifanir. Ég hef lengi vel gert skúlptúra sem eru saumaðar dúkkur og eru í raun ómálaðar sjálfsmyndir. Núna er ég kominn meira í málverkið og leyfi minningabrotum frá æskunni að flæða í frjálslegum pensilstrokum. Ég ólst upp á sveitabæ á mjög afskekktum stað. Ég er algjört náttúrubarn og alla mína æsku var ég einhvers staðar að drullumalla eða að búa eitthvað til. Á þessum árum var maður látinn vinna og gera gagn svo flestar mínar minningar snúast um það þegar ég er að reka og sækja kýrnar eða sauðfé út um allar koppagrundir. Alla daga að þvælast einhvers staðar innan um gróður og veltast um þúfur úthagans.“

„Myndlistin var alltaf mín stefna, ég ætlaði ekki að verða bóndi á Rauðasandi." Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Bjó í afnára

„Sem unglingur þá fannst mér hallærislegt að vera þaðan og þráði ég ekkert meira en að komast í burtu. Það sem kannski mótaði þessa skoðun mína á þeim tíma var að ég kem frá fjölskyldu sem hafði ekki mikið á milli handanna og bjó í afnára sem varla var með færan bílveg. En ég elska Rauðasand og er búinn að sættast við hvað mér fannst þetta púkalegt þegar ég var unglingur. Ég myndi vilja verja meiri tíma þar í dag en ég á náttúrunni og orkunni á Rauðasandi mikið að þakka fyrir að hafa mótað mig í faðmi sínum.“

Þú lærðir vöruhönnun. Hvernig lá leið þín í myndlistina?

„Myndlistin var alltaf mín stefna, ég ætlaði ekki að verða bóndi á Rauðasandi. Ég sótti um í Listaháskóla Íslands í myndlist en sótti líka um vöruhönnun til vara. Ég komst inn í báðar deildirnar, panikkaði pínu og valdi vöruhönnun haldandi það að ef mér yrði hafnað sem myndlistarmanni þá hefði ég hönnunina sem varadekk,“ segir Hjörtur að lokum.

"Núna er ég kominn meira í málverkið og leyfi minningabrotum frá æskunni að flæða í frjálslegum pensilstrokum." Ljósmynd/Valgarður Gíslason

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅