Handritamálið í samhengi nútímans
Sigrún Davíðsdóttir, cand. mag. í íslenskum bókmenntum og blaða- og fréttamaður til áratuga. mbl.is/Karítas
„Þeir sem vissu af bókinni höfðu stundum nefnt við mig að þessi bók ætti að koma út á íslensku þar sem handritamálið er veigamikill hluti af Íslandssögunni á 20. öldinni. Ég var hins vegar upptekin við ýmislegt annað og það er eiginlega Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Árnastofunar, að þakka að ég tók málið upp aftur. Það var hún sem ýtti við mér.“
Þetta segir Sigrún Davíðsdóttir um bók sína, Handritamálið í pólitísku samhengi, sem komin er út hjá Kind útgáfu. Um er að ræða uppfærða útgáfu af fræðiriti sem Sigrún gaf upphaflega út á dönsku undir heitinu Håndskriftsagens saga – i politisk belysning fyrir rúmum aldarfjórðungi.
Í inngangi sínum að bókinni kemst Sigrún svo að orði að það gerist ekki oft að þegar heimildarverk, skrifað fyrir meira en 25 árum, sé tekið upp aftur þá sé efnið í raun enn áhugaverðara en það var í fyrstu. Beðin um að útskýra þetta nefnir hún einkum tvennt:
„Ástæðan er annars vegar sú að farið er að huga að svo mörgum málum víða um lönd sem eiga sér hliðstæðu við handritamálið. Skil á menningararfleifð eru alltaf hluti af nýlendusögu og sú saga hefur fengið meiri athygli undanfarin tíu til tuttugu ár en áður. Handritamálið var mikið hita- og deilumál á sínum tíma en var leyst með býsna farsælum hætti. Þess vegna getur verið skynsamlegt að horfa til þess í þessu sambandi.
Hins vegar hafa verið raddir uppi um það á Íslandi að ástæða sé til þess að krefjast skila á þeim handritum sem urðu eftir. Sumir benda á að Danir séu að missa áhugann á handritunum og þessum hluta af þeirra eigin sögu, þannig að mikilvægt sé að láta á þetta reyna fyrr en síðar.“
Hún segir þetta hafa verið mjög skemmtilega stöðu fyrir sig sem höfund, að fá tækifæri til að gæða gamalt verk nýju lífi í tilefni af þessari íslensku útgáfu. „Þetta er ekki nýtt verk, frekar gamalt verk sett í samhengi nútímans.
Nánar er rætt við Sigrúnu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗