Erfiðara að fá vinnu og atvinnuleysi á uppleið
Erfiðara er að fá vinnu nú en fyrir ári síðan, samkvæmt greiningu BHM.
RÚV greinir frá þessu.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar mældist atvinnuleysi 5,9% í september en var 4,8% á sama tíma í fyrra. Samkvæmt niðurstöðurm BHM var hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira en það gerir 14% í september og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Lausum störfum hefur fækkað um 35% frá því á sama tíma í fyrra.
Rúmlega 1.700 manns hafa verið á atvinnuleysisskrá í meira en ár og er það um 10% fleiri en áður.
Í síðastliðnum september sögðu,samkvæmt könnun Gallup, 13,6% fyrirtækja að þau vantaði fólk í vinnu en um 30% ætluðu að fækka starfsfólki á næstunni fremur en að fjölga því.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗