Stórgrýtið verður jafnað við jörðu
Innlent | Morgunblaðið | 14.11.2026 | 13:42
Fólk sýndi samúð með því að koma með blóm og kerti eftir slysið og nú er hafinn undirbúningur að því að jafna grjótið við jörðu. mbl.is/Karítas
Vegagerðin vinnur að undirbúningi þess að stórgrýtið við Krýsuvíkurveg þar sem banaslys varð í ágúst sl. verði jafnað við jörðu. G. Pétur Matthíasson hjá Vegagerðinni segir að áður en farið verði í framkvæmdina þurfi framkvæmdaleyfi og umsögn Náttúrufræðistofnunar.
Í áðurnefndu slysi létust þrjú ungmenni þegar bíl þeirra var ekið á ofsahraða út af veginum og hafnaði ökutækið á stórgrýti sem stendur við vegkantinn. Atburður þessi vakti mikinn óhug og beindi jafnframt athygli að aðstæðum á þessum vegkafla. Strax í kjölfar slyssins lýsti Vegagerðin yfir vilja til að láta fjarlægja klettinn og skoða frekari úrbætur á vegmerkingum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem banaslys verður á þessum stað. Árið 2007 lést bifhjólamaður eftir að hafa ekið út af veginum og hafnaði sá á sama kletti.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗