Algjörlega ómissandi bandamaður
Nick Perry, nýr yfirmaður sameinaðrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk, segir Ísland gegna lykilhlutverki í vörnum Norður-Atlantshafs. Hann segir NATO vel í stakk búið til að mæta ógninni frá Rússlandi, en bandalagið verði að halda áfram að efla viðbúnað sinn.
„Ísland er beint í miðju þessa svæðis og er algerlega ómissandi,“ segir Nick Perry, nýr yfirmaður sameinaðrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum, JFC Norfolk, um mikilvægi Íslands fyrir varnir Norður-Atlantshafs.
Perry var staddur hér á landi í síðustu viku í sinni fyrstu opinberu heimsókn til annars aðildarríkis NATO frá því að hann tók við stjórn herstjórnarinnar. Ætlaði Perry að heimsækja öll ríkin á ábyrgðarsvæði JFC Norfolk í einni ferð og sagði hann því rökrétt að hefja það ferðalag á Íslandi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗