Sigmundur Ernir skrifar: Það skiptir sköpum að hlúa að samfélagi
Í raun og sann er pólitík bara tvenns konar, og snýst annað tveggja um að styrkja samfélög eða að skera þau niður. Og því þá að flækja hlutina þegar þetta liggur fyrir, enda er hægrið svo einbeitt í niðurskurðinum – og þeim eilífa þráa sínum að þjónusta kosti of mikið – að vinstrinu er næst að spyrja hvort íhaldið hafi einhvern áhuga á að lifa með öðru fólki.
Dæmisögur taka af allan vafa. Þeim er nefnilega eðlislægt að vera afhjúpandi – og þaðan af sannar og trúar kjarna sínum.
Sá sem hér safnar setningunum saman átti þess kost á dögunum að kynna sér samstarf íslenskrar þróunarsamvinnu og héraðsstjórna í einu efnaminnsta þjóðríki Afríku sem hringar sig um eitt stærsta stöðuvatn álfunnar í Malaví, á suðaustanverðum sléttum hennar. Þar hafa Íslendingar unnið náið með heimamönnum við að reisa við grunnstoðir samfélagsins og koma þeim í hendur þorpsbúa í nokkrum bágustu byggðarlögum landsins, svo þeir fái stutt við og tryggt þá innviði sem mestu máli skipta fyrir lífskjör barna, mæðra og fjölskyldna á einum viðkvæmasta bletti jarðar, sem endurtekið hefur orðið fyrir barðinu á flóðum og þurrkum, sem ítrekað hafa eyðilagt brýr og vegi, svo eftir stendur einangruð sveitin í umkomuleysi sínu, svo árum skiptir.
Það er aðkomumanni einkar aðkallandi áminning að ganga á milli hlaðinna húsa með stráþökum sem mega síns lítils ef nokkurs á regntímabilinu sem dynur á upp úr áramótum og varir mánuðum saman, en þarna á örfárra fermetra gólffleti safnast fjölskyldurnar saman eftir að skyggja tekur, og taka á sig náðir, áður en aftur morgnar með birtu og yl. Einmitt þá átti sé sem hér skrifar þess kost að fylgjast með litlu skólakrökkunum valhoppa í átt að héraðsskóla sínum, á stundum upp undir klukkutíma langa leið, en þess full tilhlökkunar að hitta jafnaldra sína, og læra meira í dag en í gær.
En það verður að segjast alveg eins og er að kjálkinn tók að síga í Salima héraði, sem hjúfrar sig upp að vestanverðum bakka Malaví-vatnsins, en þangað mættu krakkarnir á réttum tíma í snyrtilegum skólabúningi sínum, og settust flötum beinum á bert gólfið í stofu sinni, svo þétt hvert við annars hlið að sá sem stóð álengdar í gættinni hafði aldrei séð annað eins á ævi sinni, því ríflega 160 börn í einum og sama bekknum sátu þar stillt og prúð og mændu á kennara sinn fyrir framan krítartöfluna. Engin borð, engir stólar, en þó veggir og eitthvert þak yfir höfuðið, sem þótti vera nokkur framför frá því foreldrar þeirra lærðu að lesa úti undir krónum trjánna á samkomusvæði sveitarinnar.
Íslenska þróunarsamvinnan býst til að breyta ásýnd þessa skóla í sýslunni Salima á næstu misserum í samvinnu við héraðsstjórnina, og viðbrigðin fyrir krakkana eiga eftir að verða mikil og viðvarandi. Það sást svo glögglega þegar aðrir skólar í héruðunum Mangochi og Nkhotakota voru sóttir heim, en þar hefur verið lyft Grettistaki í nútímavæðingu menntastofnana með fulltingi nýjustu tækni og vísinda, og þá ekki síst sólarrafhlaðna sem kveikja ekki einasta ljósin í kennsluhúsunum, heldur láta dæluna ganga úr nálægum borholum sem veita vatni í stóreflis geyma á skólalóðinni, þar sem það er hreinsað með klór, en fyrir vikið eru ævinlega til nægar birgðir þegar skrúfað er frá krönunum við vaska og sturtuklefa á stassjóninni.
Þess utan eru komin borð og stólar í loftræstri skólastofunni fyrir hæfilega marga krakka í hverri deildinni af annarri, og það sem enn meira máli skiptir; þeir byrja daginn á almennilegri skólamáltíð sem reidd er fram af sjálfboðaliðum sem mæta til grautargerðarinnar fyrir allar aldir, svo börn þeirra og barnabörn fái magafylli til að takast á við nauðsynlegt námið.
Skólamáltíðirnar eru nefnilega aðdráttaraflið, ekki síður en námið sjálft, en af samtölum mínum við ungmennin í nýju skólunum hefur stuðningur íslensku þróunarsamvinnunnar í samstarfi við Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna á þessum vettvangi, skipt sköpum fyrir einbeitingu og úthald við námið, enda er umrædd máltíð kannski sú eina sem býr til bestu magafyllina yfir daginn. Þess vegna laðar lystugur grauturinn, búinn til úr maís og hnetum, ellegar baunum og hveiti, æ fleiri skólakrakka að námi, og minnkar brottfall til mikilla muna.
Það sem vinnur svo hvað mest með þessu átaki er að það eru í öllum tilvikum bændur í héraðinu sem útvega efniviðinn í máltíðina, en það færir þeim traustar tekjur og eykur á efnahaginn á heimaslóðum.
Það er aðdáunarvert að fá að fylgjast með svona uppbyggingu á samfélagi, og verða vitni að því hvernig vel heppnuð þróunarsamvinna skiptir sköpum á einum fátækasta skika jarðarinnar.
„Íslenska þróunarsamvinnan býst til að breyta ásýnd þessa skóla í sýslunni Salima á næstu misserum í samvinnu við héraðsstjórnina, og viðbrigðin fyrir krakkana eiga eftir að verða mikil og viðvarandi.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗