„Það er stígandi í landsliðinu okkar“
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í dag gegn Sviss í undankeppni EM. Liðið leikur í A-riðli með Írlandi, Sviss og Aserbaídsjan.
Sara Rún Hinriksdóttir er lykilmaður í íslenska liðinu og var vel stemmd á blaðamannafundi fyrir leikinn.
„Ég held að þetta verði hörkuleikur. Við þurfum að vera ákveðnari og skapa meira flæði í spilinu hjá okkur heldur en við gerðum gegn Írlandi,“ sagði Sara Rún um leikinn.
Þurfa að byrja leikinn af fullum krafti
Íslenska liðið vann fyrsta leik sinn í riðlinum gegn Írlandi á sama tíma og Sviss vann stórsigur á Aserbaídsjan. Það er því líklegt að leikurinn gegn Sviss verði erfiðari.
„Við þurfum að byrja leikinn af meiri krafti og ákveðni en á móti Írlandi. Mér fannst við mun betra liðið í þeim leik en við fórum aldrei í efsta gír á móti þeim sem gerði það að verkum að við slitum þær aldrei alveg frá okkur.“ - sagði hún.
En er það ekki einmitt lykilatriði að byrja leikinn strax af fullum krafti til að lenda ekki í vandræðum með Svisslendinga?
„Mögulega gæti það orðið basl en við erum að spila landsleik og við erum alltaf tilbúnar að gefa allt í þessa leiki og munum gera það. Við þurfum bara að mæta rétt stemmdar og af fullum krafti í leikinn. Þá veit ég að við getum vel unnið Sviss.“
Ánægð með þróunina í landsliðinu
Sara Rún er ánægð með stígandann í íslenska kvennalandsliðinu og er ánægð með þróunina og það að liðið sé að taka næstu skref í þróun kvennalandsliðsins í körfubolta.
„Það eru ótrúlega góðir hlutir að gerast í landsliðinu og ég er mjög ánægð að vera partur af þessari vegferð. Það er ótrúlega góður andi og samheldni í hópnum. Það er stígandi í landsliðinu okkar og ég hvet alla til að koma í Ólafssal og hvetja okkur því við erum með fullt af ungum og frábærum leikmönnum sem eru að stíga upp þegar lykilleikmenn eru meiddir,“ sagði bjartsýn Sara Rún í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗