Léttir að númerið varð aftur virkt fyrir óveðrið

Jón Svanberg Hjartarson er framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.

Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að það muni taka nokkra daga að komast að því hvað nákvæmlega olli því að neyðarnúmerið 112 varð óvirkt. 

Hann segir þó ljóst að bilunin hafi orðið í hugbúnaði símstöðvar Neyðarlínunnar

Þá leggur hann ríka áherslu á að þjónusta Neyðarlínunnar verði ávallt að vera í lagi, óháð aðstæðum í samfélaginu.

Rýna þurfi í upplýsingagjöf

Þegar í ljós kom að neyðarnúmerið væri óvirkt voru birtar tilkynningar þess efnis á Facebook-síðum Neyðarlínunnar, lögreglu og slökkviliðsins. Jafnframt var fréttatilkynning send á fjölmiðla.

Spurningar hafa vaknað um hvort upplýsingar um bilunina hafi skilað sér nægilega vel til erlendra ferðamanna hér á landi. Jón Svanberg segir í samtali við mbl.is að það verði meðal þess sem skoðað verður gaumgæfilega þegar rýnt er í bilunina.

„Það er náttúrulega mjög mikilvægt að það sé rýnt í þetta í framhaldinu og gerðar þær úrbætur sem þarf til þess að lágmarka líkur á því að þetta gerist aftur,“ segir hann.

Eigi alltaf að vera í lagi

Spurður hvort það hafi verið léttir að neyðarnúmerið skyldi komast aftur í gagnið áður en óveður gærdagsins skall á svarar hann því játandi en segir það skipta litlu máli hvað bjátar á. Þjónustan eigi einfaldlega að vera í lagi.

„Það er algjörlega óháð því hvernig ástand er í samfélaginu. Ég hef þá sýn að þetta eigi bara alltaf að vera í lagi.“ 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅