„Þú þarft ekki að umturna öllu þínu lífi, týna sjálfum þér“
Sísí Sigurðardóttir, Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir höfundur bókarinnar og María Hólmgrímsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir fagnaði útgáfu bókar sinnar Pabbi – sagan þín í fjölmennu útgáfuhófi á Skáld á Akureyri á laugardaginn. Hún kynnti bókina fyrir gestum, sem fengu með henni viðarbókamerki eftir Þóru Soffíu Gylfadóttur, eiganda Gallerí 675.
Bókin kemur í kjölfar Mamma – sagan þín, sem kom út fyrir ári. Báðar eru ætlaðar foreldrum sem vilja skrá sögu sína og varðveita minningar fyrir uppkomin börn sín og komandi kynslóðir.
Í nýju bókinni deila nokkrir íslenskir feður persónulegum frásögnum, þeirra á meðal Bjarki Már Sigurðsson, Dagur B. Eggertsson, Magni Ásgeirsson, Gísli Einarsson og Ágúst Þór Brynjarsson.
Bæjarfulltrúinn og fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson gefur verðandi feðrum meðal annars þetta ráð:
„Þú þarft ekki að umturna öllu þínu lífi, týna sjálfum þér og verða ekkert annað en pabbi. Haltu áfram að vera maki, vinur, vinnufélagi og passaðu að rækta þessa hluti þó þú sért orðinn pabbi. Það hlutverk á bara að stækka þig.“
Af tilefninu eru tveir kokteilar á boðstólum á Skáld til 14. nóvember og bera þeir nöfnin Pabbabrandari og Mamma veit best.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










