Vilja fella mannréttindaráð úr stjórnarsamþykkt

Forsætisnefnd vísaði tillögunni til síðari umræðu í borgarstjórn á fundi sínum í gær. Sú afgreiðsla felur ekki í sér endanlega samþykkt breytinganna. mbl.is/Karítas

Fagráðum sem talin eru upp í ákvæði stjórnarsamþykktar Reykjavíkurborgar um kosningu ráða til fjögurra ára fækkar úr sjö í sex, samkvæmt breytingatillögu sem nú er til meðferðar. Lagt er til að mannréttindaráð verði fellt úr upptalningunni.

Forsætisnefnd vísaði tillögunni til síðari umræðu í borgarstjórn á fundi sínum í gær. Sú afgreiðsla felur ekki í sér endanlega samþykkt breytinganna.

Í bréfi skrifstofu borgarstjórnar segir að tillagan sé unnin vegna breyttrar nefndaskipanar hjá borginni. Hún var tekin til fyrri umræðu í borgarstjórn 20. október.

Fleiri ráð hverfi úr upptalningu

Jafnframt er lagt til að íbúaráð, fjölmenningarráð og ofbeldisvarnarnefnd hverfi úr upptalningu annarra nefnda og ráða sem borgarstjórn kýs til.

Breytingatillagan felur einnig í sér að ákvæði um kosningu fulltrúa í aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks, umdæmisráð Barnaverndar Reykjavíkur, stjórn Brúar lífeyrissjóðs og öldungaráð verði felld úr þeirri upptalningu. Það eitt segir þó ekki til um hvort viðkomandi starfsemi leggist af eða verkefni færist annað.

Fjölga í endurskoðunarnefnd

Lagt er til að aðalfulltrúum í endurskoðunarnefnd fjölgi úr þremur í fjóra. Varafulltrúar verði áfram þrír.

Þá er upptalning fundargerða sem taka skal á dagskrá borgarstjórnar uppfærð til samræmis við breytta nefndaskipan. Samkvæmt bréfi skrifstofunnar bættust þær lagfæringar við milli umræðna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅