Kviknar neisti í Laugardalnum á ný?
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is, eins og alla föstudaga.
KSÍ ásamt bakhjörlum hafa tekið ákvörðun um að bjóða íslensku þjóðinni á úrslitaleik umspilsins um sæti á HM, þangað sem kvennalandsliðið hefur aldrei farið áður, við Portúgal í næsta mánuði.
„Mér finnst þetta frábært framtak því við þurfum frekar stemningu á þessum leik heldur en aukapening í kassann,“ sagði Helgi.
„Mætingin hefur verið dræm og það gæti orðið erfitt að selja Íslendingum að sitja úti 5. desember þó mikið sé undir. Þetta er bara geggjað og vonandi kemur liðið úr fyrri leiknum með góða stöðu og þá klárum við Portúgal á ísköldum Laugardalsvelli.
Þetta gæti líka kveikt einhvern neista í kringum þetta lið aftur. Hann hefur aðeins dottið niður og KSÍ verið í smá vandræðum með bæði A-landsliðin sín,“ sagði Hörður.
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗