Andlát: Guðjón Þórðarson

Guðjón Þórðarson gerði KA að Íslandsmeisturum árið 1989.

Guðjón Þórðarson, einn sigursælasti þjálfari í sögu íslensks fótbolta, er fallinn frá 71 árs að aldri.

Guðjón var þjálfari í 35 ár og stýrði fjölda liða hér á landi sem og á Englandi. Hann var einnig þjálfari íslenska karlalandsliðsins frá 1997 til 1999.

Guðjón var þá þjálfari ÍA á gullaldarskeiði félagsins.

Guðjón glímdi við Parkinson-sjúkdóminn og ræddi um veikindi sín í viðtali við RÚV fyrr á árinu.

„Ég hef nú verið betri. Þetta eru erfiðir dagar, vikur og mánuðir. Það er tvennt sem hefur verið að hrjá mig. Annars vegar Parkinson, sem ég greindist með árið 2023, og síðan hef ég verið með bakvandamál. Þetta leiðir niður í fætur og ég missi mátt,“ sagði Guðjón.

Guðjón Þórðarson gerði garðinn frægan sem þjálfari Stoke sem þá var í eigu Íslendinga. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson

Guðjón vakti mikla athygli fyrir störf sín sem þjálfari KA á Akureyri en undir hans stjórn varð liðið Íslandsmeistari árið 1989. 

Eftir farsæla dvöl á Akureyri sneri Guðjón aftur heim á Skaga og tók við ÍA, sem hafði fallið úr efstu deild árið 1990. Þar hófst mögnuð uppbygging sem skilaði sér fljótt í árangri. Guðjón kom Skagamönnum upp úr 1. deild árið 1991 og ári síðar varð liðið Íslandsmeistari. Árið 1993 bætti ÍA svo bikarmeistaratitlinum við og vann þar með tvennuna. 

Guðjón tók síðan við KR og undir stjórn hans varð KR bikarmeistari tvö ár í röð, 1994 og 1995. 

Guðjón sneri aftur á Skagann árið 1996 og gerði liðið aftur að deildar- og bikarmeisturum. Hann varð því bikarmeistari fjórum sinnum í röð. 

Guðjón Þórðarson þjálfaði íslenska landsliðið með góðum árangri undir lok 20. aldarinnar. Ljósmynd/rax

Guðjón tók síðan við íslenska karlalandsliðinu árið 1997 og stýrði því til ársins 1999. 

Næsti viðkomustaður var England þar sem Guðjón tók við knattspyrnustjórastöðunni hjá Stoke City eftir að félagið hafði verið keypt af íslenskum fjárfestum. Tíminn hjá félaginu var viðburðaríkur og þrátt fyrir ýmsar áskoranir tókst Guðjóni að koma Stoke upp í næstefstu deild árið 2002. Ekki leið þó á löngu þar til hann var látinn fara.

Áður en yfir lauk hafði Stoke bikarkeppni neðri deildar liða eftir sigur á Bristol City í úrslitaleik á gamla Wembley-leikvanginum. Leikurinn var sá síðasti sem fór fram á þessum sögufræga velli og vakti mikla athygli hér á landi. Stór hluti þjóðarinnar fylgdist með þegar Stoke tryggði sér titilinn.

Guðjón hefur sjálfur lýst þessum sigri sem stærstu stund ferils síns.

Í Stoke vikuna sem Guðjón Þórðarson tók við liðinu.

Eftir Stoke tók við nýtt ævintýri hjá Start í Noregi en Guðjón átti síðar eftir að stýra þremur enskum liðum til viðbótar, Barnsley, Notts County og Crewe Alexandra. Enginn íslenskur þjálfari hefur stýrt jafn mörgum félögum í Englandi.

Guðjón sneri aftur til ÍA árið 2007 og hélt áfram að láta til sín taka í íslenskri knattspyrnu. Síðasta starf hans sem þjálfari var hjá Víkingi Ólafsvík en þar lét hann af störfum árið 2022.

Leikmenn ÍA tollera Guðjón Þórðarson eftir bikarúrslitaleikinn á Laugardalsvellinum árið 1993 þegar ÍA vann Keflavík 2:1. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Guðjón Þórðarson á hliðarlínunni í bikarúrslitaleik KR og Fram árið 1995. KR varð tvívegis bikarmeistari undir stjórn Guðjóns og var Heimir í stóru hlutverki bæði árin. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅