Stór áfangi fyrir Mohamed Salah
Mohamed Salah er orðinn markahæsti leikmaður í sögu egypska landsliðins eftir að hafa skorað tvennu í stórsigri Egyptalands á Malaví, 5:0, í undankeppni Afríkukeppninnar í fótbolta í gærkvöldi.
Salah skoraði síðustu tvö mörk Egyptalands í leiknum og er kominn með 70 mörk í 123 landsleikjum á ferlinum.
Með mörkunum fór hann upp fyrir Hossam Hassan, sem skoraði 69 mörk fyrir Egyptaland. Hassan var þjálfari Egypta á HM í Norður-Ameríku í sumar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗