Ofsafengið, bráðfyndið ferðalag
Halldóri Armand er líkt við rússneska skáldið Nikolaj Gogol í umsögn í þýska vikuritinu Der Spiegel um þýsku þýðinguna á skáldsögu hans Mikilvægt rusl.
Gogol skrifaði söguna Nefið þar sem rakari finnur afskorið nef í samloku, en í Mikilvægu rusli finnur ruslakarlinn Gómur Barðdal nef í ruslatunnu í Þingholtunum.
Rýnir Der Spiegel, Marcus Müntefering, skrifar að Gogol hafi haldið spegli að rússneska keisaradæminu og sama geri Halldór þegar hann sýni hvernig Ísland, „lítið, afvikið og friðsamlegt samfélag, sé fullkomlega fært um að sá fræjum eigin tortímingar …“
Rýnirinn segir að bókin sé ofsafengið, bráðfyndið ferðalag í fáránleikann, fullt af uppákomum, orðaleikjum og fáránlegum vendingum.
Hann lýkur dómnum á að segja að þar sem þeir, sem málið varðar, hafi engan tíma til að lesa rýni Jeans Zieglers eða Thomasar Pikettys um kapítalismann ætti hnitmiðuð greining þessarar skáldsögu að vera skyldulesning á viðburðum á borð við ársfundi Heimsviðskiptaráðsins í Davos.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗