Guðjón Þórðarson er látinn

Hörður Snævar Jónsson

Laugardaginn 14. nóvember 2026 11:58

Guðjón Þórðarson. © 365 ehf / Anton Brink

Guðjón Þórðarson, einn fremsti þjálfari í sögu fótboltans á Íslandi, féll frá í gær. Guðjón opnaði sig um erfið veikindi í viðtali við RÚV í september. Guðjón var 71 árs gamall þegar hann féll frá.

Guðjón hafði glímt við heilsubrest síðustu ár og hafði barist við Parkinson-sjúkdóminn.

Hann er einn sigursælasti og áhrifamesti knattspyrnuþjálfari Íslands. Ferill hans spannaði áratugi, bæði hér heima og erlendis, en áður en hann hóf þjálfun skapaði hann sér sterkt orðspor sem varnarmaður hjá ÍA.

Guðjón lék með meistaraflokki ÍA frá 1972 til 1986 og kom við sögu í 392 leikjum fyrir félagið. Á þeim árum varð hann fimm sinnum Íslandsmeistari, árin 1974, 1975, 1977, 1983 og 1984, og fimm sinnum bikarmeistari. Hann lék einnig einn A-landsleik fyrir Ísland árið 1985. Sem leikmaður þótti hann baráttuglaður, útsjónarsamur og agaður.

Þjálfaraferillinn hófst hjá ÍA árið 1987. Guðjón náði sínum fyrsta stóra áfanga þegar hann gerði KA að Íslandsmeisturum árið 1989, í fyrsta sinn í sögu Akureyrarfélagsins. Eftir endurkomu til ÍA vann hann 1. deild árið 1991 og stýrði liðinu síðan til Íslandsmeistaratitla 1992 og 1993. Árið 1993 vann liðið einnig bikarinn. Hann gerði KR að bikarmeisturum 1994 og 1995 og sneri aftur á Akranes, þar sem hann vann tvöfalt árið 1996.

© 365 ehf / Anton Brink

Á árunum 1997–1999 stýrði Guðjón íslenska karlalandsliðinu. Undir hans stjórn vann liðið ellefu af 25 landsleikjum og náði meðal annars frægu 1–1 jafntefli gegn nýkrýndum heimsmeisturum Frakka árið 1998. Sú frammistaða vakti athygli og styrkti stöðu íslenskrar knattspyrnu.

Árið 1999 tók Guðjón við Stoke City á Englandi. Hann leiddi liðið til sigurs í bikarkeppni neðri deilda árið 2000 og upp í næstefstu deild árið 2002. Síðar þjálfaði hann meðal annars Start, Barnsley, Notts County, Crewe Alexandra, Grindavík, NSÍ Runavík og Víking Ólafsvík.

Guðjón Þórðarson.

Þjálfunaraðferðir hans þóttu á sínum tíma nýstárlegar, enda lagði hann ríka áherslu á skipulag, líkamlegan styrk, samheldni leikmanna og alltaf skýrt hlutverk hvers og eins.

Árangur Guðjóns einkennist af metnaði, aga og hæfileikanum til að byggja upp sigurlið. Áhrif hans á íslenska knattspyrnu eru ótvíræð og afrek hans, heima og erlendis, tryggja honum sérstakan sess í sögu íþróttarinnar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅