Rauðvínið gerir gæfumuninn
Rauðvín og kryddjurtir gefa kjötsósunni í lasanja Berglindar Hreiðarsdóttur ríkan keim. Ljósmynd/Aðsend
Berglind Hreiðarsdóttir, sem heldur úti uppskriftasíðunni Gotterí og gersemar, býður hér upp á helgarútgáfu af lasanja þar sem kjötsósan fær góðan tíma í ofninum með rauðvíni og kryddjurtum. Innblásturinn fékk hún frá matarbloggaranum John Gregory Smith.
Hér er lasanjaplötunum brotið saman við kjötsósuna áður en mjúkri ostasósu og rifnum osti er dreift yfir. Úr verður ríkulegur og bragðmikill réttur sem er tilvalið að bera fram með góðu brauði og njóta í rólegheitum um helgina.
Rauðvínslasanja
Lasanjaplötunum er brotið saman við kjötsósuna og rétturinn bakaður með cheddarostasósu og rifnum goudaosti. Ljósmynd/Aðsend
Fyrir 4–6
- 800 g nautahakk
- 200 g lasanjaplötur
- 1 laukur
- 4 hvítlauksrif
- 100 g tómatpúrra
- 400 g saxaðir tómatar í dós
- 350 ml vatn
- 3 msk. fljótandi nautakraftur
- 300 ml rauðvín
- 1 msk. óreganó
- 1 msk. ferskt tímían
- 2 tsk. hvítlauksduft
- salt og pipar eftir smekk
- ólífuolía til steikingar
- rifinn goudaostur eftir smekk
Ostasósa
- 40 g smjör
- 40 g hveiti
- 400 ml nýmjólk
- 100 g rifinn cheddarostur
Aðferð
Kjötsósa
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Saxið laukinn og steikið í ólífuolíu við meðalhita í potti sem má fara í ofn, þar til hann hefur mýkst.
- Rífið hvítlaukinn saman við og steikið stutta stund áfram.
- Bætið tómatpúrru, óreganói, tímíani og hvítlauksdufti saman við. Blandið vel og kryddið með salti og pipar.
- Hellið rauðvíninu út í og hækkið hitann lítillega. Látið malla við meðalháan hita í nokkrar mínútur, þar til vínið hefur soðið að hluta niður.
- Blandið söxuðum tómötum, vatni og nautakrafti saman við.
- Bætið nautahakkinu út í og blandið vel. Setjið lok á pottinn og eldið í ofninum í eina og hálfa klukkustund.
- Útbúið ostasósuna undir lok eldunartímans.
Ostasósa
- Bræðið smjörið í potti og hrærið hveitinu saman við.
- Bætið mjólkinni smám saman út í og pískið þar til sósan er slétt. Hitið að suðu við vægan hita og hrærið á meðan sósan þykknar.
- Bætið cheddarostinum saman við og hrærið þar til hann hefur bráðnað.
Samsetning
- Hellið kjötsósunni í eldfast mót.
- Brjótið lasanjaplöturnar í minni bita og blandið vel saman við sósuna þannig að hún þeki plöturnar.
- Dreifið ostasósunni yfir og stráið rifnum goudaosti ofan á.
- Bakið áfram við 180°C í um 20 mínútur eða þar til lasanjaplöturnar eru eldaðar í gegn og osturinn orðinn gullinn.
- Berið fram með góðu brauði.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/20/1692089.jpg)
