Bandarískur liðsforingi handtekinn

Japanska lögreglan handtók í dag 27 ára liðsforingja í bandaríska flughernum vegna gruns um ölvunarakstur á Okinawa.

Aðeins vika er liðin frá því að stjórnvöld í Japan og Bandaríkjunum komu sér saman um aðgerðir til að koma í veg fyrir afbrot bandarískra hermanna á eyjunni.

Aðgerðirnar voru ákveðnar í kjölfar morðmáls sem bandarískur landgönguliði er talinn tengjast og vakti mikla reiði.

Um 54 þúsund bandarískir hermenn eru staðsettir í Japan, flestir á Okinawa. Afbrot þeirra hafa lengi valdið spennu í samskiptum ríkjanna, sem eiga náið samstarf í öryggismálum.

Handtekinn við akstur um nótt

Talsmaður lögreglunnar á Okinawa sagði við AFP-fréttastofuna að maðurinn hefði verið handtekinn við akstur í borginni Okinawa um klukkan 3.09 í nótt að staðartíma.

Bandarískir embættismenn tilkynntu í síðustu viku að útgöngubann sem gildir um lægra setta hermenn yrði framlengt til 7. desember. Jafnframt væri öllum hermönnum bannað að neyta áfengis utan heimilis síns frá miðnætti til klukkan fimm að morgni.

Talsmaður lögreglunnar sagði óljóst hvort liðsforinginn hefði brotið gegn útgöngubanninu.

Samkvæmt japönsku fréttastofunni Kyodo er maðurinn við störf í Kadena-flugherstöðinni á Okinawa. Ekki náðist strax í forsvarsmenn stöðvarinnar til að fá viðbrögð.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅