Stöðvaði innkaupaferli borgarinnar vegna umferðarljósa
Innkaupin vörðuðu útvegun og uppsetningu umferðarljósabúnaðar á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu annars vegar og Snorrabrautar og Laugavegar hins vegar, vegna framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínu. Ljósmynd/Colourbox
Kærunefnd útboðsmála stöðvaði í september innkaupaferli Reykjavíkurborgar vegna umferðarljósabúnaðar við tvenn gatnamót á Snorrabraut.
Nefndin taldi verulegar líkur á broti gegn lögum um opinber innkaup þar sem ætla yrði að auglýsa hefði átt innkaupin á Evrópska efnahagssvæðinu.
Ákvörðunin er frá 21. september en var birt í gær. Hún tekur eingöngu til kröfu um tímabundna stöðvun innkaupaferlisins meðan beðið er endanlegrar niðurstöðu í kærumálinu.
Innkaupin vörðuðu útvegun og uppsetningu umferðarljósabúnaðar á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu annars vegar og Snorrabrautar og Laugavegar hins vegar, vegna framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínu.
Deilt um umfang innkaupanna
Reykjafell kærði innkaupaferlið 23. júlí. Borgin hafði 3. júlí boðið tilteknum fyrirtækjum, þar á meðal Reykjafelli og Smith & Norland, að gera tilboð í verkið. Meðal annars átti að skipta um stjórnkassa og setja upp ný ljósker, skynjara, hnappabox og hljóðgjafa fyrir blindramerki.
Reykjafell taldi að skilyrði innkaupanna væru sniðin að vörum og þjónustu Yunex Traffic, sem Smith & Norland hefur umboð fyrir. Fyrirtækið gerði einnig athugasemdir við fyrri kaup borgarinnar á búnaði til miðlægrar stýringar umferðarljósa.
Þá taldi Reykjafell að innkaupin væru hluti af stærri heild og að borginni hefði borið að auglýsa þau á EES-svæðinu.
Borgin hafnaði þessu og taldi um að ræða aðskilin innkaup sem væru undir viðmiðunarfjárhæðum. Hún andmælti jafnframt því að skilyrðin væru sniðin að búnaði tiltekins framleiðanda eða hindruðu Reykjafell í að bjóða sinn búnað.
Tengsl við Borgarlínu breyttu ekki niðurstöðunni
Borgin byggði meðal annars á því að kaupin tengdust samstarfsverkefni hennar og Betri samgangna og féllu undir sérstakar reglur um innkaup á sviði flutningsþjónustu. Samkvæmt þeim giltu hærri viðmiðunarfjárhæðir.
Nefndin féllst ekki á það. Innkaupin vörðuðu stýringu umferðar á gatnamótum í almenna gatnakerfinu. Þótt strætisvagnar færu þar um, rétt eins og einkabílar, nægði það ekki til að sérreglurnar ættu við.
Því bæri að miða við almenna viðmiðunarfjárhæð sveitarfélaga vegna vörusamninga. Hún væri tæpar 31,9 milljónir króna án virðisaukaskatts og réði því hvort auglýsa bæri innkaupin á EES-svæðinu.
Búnaðarkaup fyrir rúmar 59 milljónir á tólf mánuðum
Borgin upplýsti við meðferð málsins að samningar hennar um kaup á umferðarljósabúnaði hefðu numið rúmum 59,1 milljón króna án virðisaukaskatts á tímabilinu frá 3. júlí 2025 til 3. júlí 2026.
Nefndin taldi ekki liggja fyrir gögn um heildstæða áætlun um endurnýjun alls umferðarljósabúnaðar borgarinnar. Hins vegar væri ljóst að borgin endurnýjaði reglulega hluta búnaðarins og að hin kærðu innkaup væru áþekk öðrum kaupum vegna gatnamóta í borginni.
Því bæri að beita reglum um mat á verðmæti innkaupa sem fara fram með reglulegu millibili.
Engin skrifleg greining á beitingu þeirra reglna lá fyrir hjá borginni. Þá lá hvorki fyrir áætlun um kaup á slíkum búnaði á fjárhagsárinu 2026 né næstu tólf mánuði frá því að verðfyrirspurnin var send út.
Nefndin taldi því óvissu um hvert rétt metið verðmæti innkaupanna hefði verið. Með hliðsjón af umfangi viðskiptanna næstliðna tólf mánuði yrði þó að ætla að innkaupin hefðu farið yfir viðmiðunarfjárhæð og að auglýsa hefði átt þau á EES-svæðinu.
Ekki talið sýnt að skilyrðin væru sérsniðin
Nefndin taldi hins vegar ekki verða séð á þessu stigi að skilyrði innkaupanna væru sniðin að vörum og þjónustu Yunex Traffic. Vísaði hún þar meðal annars til álits sérfræðings sem kallaður hafði verið til ráðgjafar.
Þá taldi nefndin ekki annað verða séð en að sex mánaða kærufrestur til að krefjast óvirkni samnings vegna uppfærslu á miðlægri stýringu umferðarljósa væri liðinn.
Nefndin taldi engu að síður verulegar líkur hafa verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup sem gæti leitt til ógildingar ákvarðana eða annarra athafna borgarinnar. Hún féllst því á kröfu Reykjafells um að stöðva innkaupaferlið um stundarsakir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗