Ellefti sigurinn í röð

Stephon Castle með boltann í nótt.

Stephon Castle með boltann í nótt. AFP/Ronald Cortes

San Antonio Spurs vann sinn ellefta leik í röð þegar liðið tók á móti Golden State Warriors í bandarísku NBA-deild karla í körfubolta í San Antonio í nótt. 

San Antonio hefur nú unnið ellefu leiki en liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum. Golden State hefur hins vegar unnið átta leiki og tapað þremur. 

Stephon Castle skoraði 32 stig, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar í liði San Antonio. Hjá Golden State skoraði LJ Cryer 20 stig. 

Houston Rockets er einnig í fantaformi en liðið vann Utah Jazz, 125:118, í Houston. 

Houston er með tíu sigra og þrjú töp en Utah hefur einungis unnið einn leik og tapað tólf. 

Tyrkinn Alperen Sengun fór á kostum í liði Houston en hann skoraði 43 stig, tók tólf fráköst og gaf fimm stoðsendingar. 

Önnur úrslit: 

Indiana Pacers 106:104 New York Knicks
Orlando Magic 107:99 Milwaukee Bucks
Miami Heat 133:121 Cleveland Cavaliers
Chicago Bulls 125:117 Atlanta Hawks
New Orleans Pelicans 111:142 Memphis Grizzlies
Sacramento Kings 107:120 Portland Trail Blazers
Los Angeles Clippers 113:112 Oklahoma City Thunder

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅