Gaf miðlífskrísunni puttann

Júlía Þorvaldsdóttir var að vonum glöð þegar hún kláraði hálfan járnkarl í Cascais. Ljósmynd/Golli

Síðla dags, eftir vinnu og fyrir æfingu, bjóða mæðginin Júlía Þorvaldsdóttir og Kári Steinn Kjartansson blaðamanni í heimsókn til að ræða ástríðu þeirra beggja, þríþraut. Bæði vinna þau hjá Þjóðskrá; Júlía sem framkvæmdastjóri og Kári í þjónustu, en meðfram vinnu er hann að læra til rafvirkja.

Eiginmaður Júlíu og faðir Kára er Kjartan Þorbjörnsson, ávallt kallaður Golli, ljósmyndari Heimildarinnar og fyrrum ljósmyndari Morgunblaðsins til áratuga. Golli hefur verið iðinn að skrásetja íþróttaiðkun fjölskyldunnar í myndum og myndböndum. Myndirnar vöktu áhuga blaðamanns sem vildi forvitnast meira um þetta „ofursprikl“ eiginkonunnar og sonar. Reyndar hefur íþróttabakterían smitað hina fjölskyldumeðlimina og er Golli farinn að mæta á lyftingaæfingar og heimasætan Hjördís Freyja er einnig farin að æfa þríþraut. Sannkallað fjölskylduáhugamál sem eflir ánægju, samveru og heilsu!

Ekki eftirbátur mömmu

Fyrir um þremur árum þegar Kári var að byrja í þríþraut voru afar fáir á hans aldri í þríþraut, þó það hafi nú breyst. Júlía segir að hann hafi vantað smá drifkraft sem oft fæst þegar maður æfir með öðrum.

Kári Steinn byrjaði að æfa þríþraut og Júlía móðir hans fylgdi í kjölfarið.

„Í þessari keppni sá ég fólk á sextugs-, sjötugs-, áttræðis-, og níræðisaldri að keppa. Ég var þá sjálf á tímamótum og vissi ekki í hvaða átt ég átti að fara. Mér fannst ótrúlega margir í kringum mig neikvæðir og óánægðir í vinnunni og fannst drykkja aukast í samfélaginu. Ég þurfti að ákveða hvaða týpa ég ætlaði að vera; ætlaði ég að liggja uppi í sófa og horfa á Netflix og borða snakk eða vera í „happy hour“ alla daga? Eða ætlaði ég að taka ábyrgð á mínu lífi og minni líðan? Ég spurði þá Kára hvað honum fyndist um að ég myndi koma og æfa með honum,“ segir Júlía.

Kári tók vel í hugmyndina.

„Mér fannst það bara æði. Mjög skemmtileg hugmynd,“ segir hann.

„Mér fannst drepleiðinlegt að hlaupa og hafði ekki hlaupið í 35 ár. Ég átti „racer“ einhvern tímann fyrir löngu eitt sumar en ekki lengur. Svo var ég búin að segjast ætla aldrei að keppa í neinu. Þannig að ég var bara með til að byrja með. Svo fórum við til Erkner í Þýskalandi þar sem Kári tók aftur ólympíska þríþraut og lenti þar í öðru sæti í sínum aldursflokki. Eftir keppnina myndaðist svo mikil stemning að ég ákvað þá, 49 ára, að gefa mér hálfan járnkarl í fimmtugsafmælisgjöf. Það er 1,9 kílómetra sund í sjó, 90 kílómetrar á hjóli og svo er hlaupið hálft maraþon,“ segir Júlía.

Hún stóð við það og nú þegar hún er 51 árs hefur hún tekið tvo hálfa járnkarla, í Portúgal og í Svartfjallalandi. Kári gat auðvitað ekki verið minni maður og ákvað að skella sér með.

Gott form er ofurkrafturinn

Hvernig var það Júlía í fyrstu keppninni þinni í Portúgal, fannst þér þú hafa æft nóg?

„Nei, þetta er eins og að fara í próf; maður lærir aldrei nóg og maður æfir aldrei nóg fyrir þríþraut. En mitt markmið var að æfa nóg til að geta klárað án þess að slasa mig. Við mættum viku fyrr og ég fór daginn eftir í sjóinn og hélt ég myndi drukkna; mér leið svo illa. Ég fór í sjóinn daglega eftir það og við kynntum okkur vel hjóla- og hlaupaleiðina. Þarna er ég bara venjuleg kona sem hafði ekki hlaupið í áratugi, hafði ekki snert hjól að neinu viti, og kunni varla að synda. Ég hafði aldrei synt 1,9 kílómetra í sundlaug, hvað þá í sjó, hjólað 90 kílómetra eða hlaupið hálft maraþon sem er hálfur járnkarl. Þetta var oft stressandi og ég hugsaði oft; „í alvöru Júlía, það var enginn að biðja þig um þetta!“ En Golli er duglegur að hvetja okkur áfram og er stoltur af okkur,“ segir hún.

Kári og Júlía eru samrýnd mæðgin.

„Þegar keppnisdagurinn rann upp leið mér ótrúlega vel. Ég synti hægt, eins og ég geri,“ segir hún og hlær.

„Ég náði mínum markmiðum og Kári sínum og þetta var rosalega skemmtilegt,“ segir Júlía og segir lífið hafi breyst mikið eftir að hún byrjaði að æfa þríþraut.

„Ofurkrafturinn fyrir fólk á okkar aldri felst í því að vera í formi. Hann felst ekki í því að vera mjór, brúnn eða eiga þúsund vini. Það gefur mér orku að vera innan um fólk sem er að æfa og maður nærir aðra. Svo er gaman að horfa á börnin sín og maka njóta sín í þessu samfélagi og eignast nýja vini,“ segir hún.

Brjálað veður og skólp á götum

Nýjasta ferðin var nú í haust til Svartfjallalands þar sem þau kepptu í hálfum járnkarli.

„Við komum út á laugardegi og veðrið var mjög fínt. Við æfðum aðeins og fórum í sjóinn og allt leit vel út. Veðrið fór versnandi eftir því sem leið á vikuna og á föstudeginum var mesta rigning sem ég hef upplifað,“ segir Júlía og Kári tekur undir það.

Kári er orðinn öflugur þríþrautsmaður með framtíðina fyrir sér.

Kári er orðinn öflugur þríþrautsmaður með framtíðina fyrir sér. Ljósmynd/Goli

„Við vorum með svakalega gott útsýni úr íbúðinni sem við bjuggum í yfir fallegan fjörð og gróin fjöll. Þennan dag kom bara svartamyrkur og við sáum ekki í gegnum rigninguna; hún var eins og veggur! Þarna er skólpkerfið ekki eins og hér og göturnar urðu alveg ógeðslegar á laugardeginum. Mörgum brá, eðlilega, enda var keppnin á sunnudeginum. Þetta leit ekki vel út. Svo á sunnudagsmorgni um fjögur fórum við út í grenjandi rigningu með hjólin okkar. Svo rættist svona rosalega úr veðrinu og kom í raun fullkomið keppnisveður, háskýjað, logn og passlegur hiti Þetta var mikil upplifun,“ segir Júlía.

Það má segja, Júlía, að þú hafir gefið miðlífskrísunni þinni langt nef?

„Já, ég gaf henni puttann!“ segir hún og skellir upp úr.

Ítarlegt viðtal er við Júlíu og Kára í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅