Borðar þú banana daglega? – Það getur verið hættulegt fyrir suma

Pressan

Laugardaginn 14. nóvember 2026 11:30

Bananar eru bæði næringarríkir og bráðhollir.

Bananar, algjört ljúfmeti og ótrúlega þægilegt að grípa einn og skella í sig, taka með í nesti eða fá sér á milli mála. Þeir eru ódýrir, mettandi og góð leið til að ná sér í kalíum. Fyrir flesta eru bananar góður hluti af matarvenjunum.

En bananar geta reynst sumum hættulegir. Fyrir fólk, sem er með skerta nýrnastarfsemi, getur banani á dag sent kalíummagnið í blóðinu á hættulegt stig. Eftir því sem segir á sundhed.dk þá er skert nýrnastarfsemi algengasta ástæðan fyrir háu kalíumgildi í blóðinu.

Venjulegur banani, sem vegur um 118 grömm, inniheldur um 422 milligrömm af kalíum samkvæmt upplýsingum bandarískra yfirvalda. Þetta er stór hluti af hinni daglegu þörf einstaklinga.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með að fullorðnir fái minnst 3.510 milligrömm af kalíum á dag úr fæðunni. Ástæðan er að kalíum getur lækkað blóðþrýstinginn og dregið úr líkunum á hjarta- og æðasjúkdómum og blóðtappa. Fyrir heilbrigðan líkama er banani því ódýr uppspretta kalíums.

Vandinn er þegar nýrun geta ekki lengur losað sig við það kalíum sem hann innbyrðir. Krónísk nýrnaveiki þróast oft á margra ára tímabili, sérstaklega hjá fólki með sykursýki 2 og of háan blóðþrýsting. Hjá mörgum uppgötvast þetta of seint.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅