Margt enn á huldu um innbrotið

Atvikið átti sér stað í póstnúmerinu 104 en Laugardalurinn tilheyrir því meðal annars. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir karlmenn og ein kona eru í haldi lögreglu eftir að hafa brotist inn á heimili í fjölbýlishúsi í Reykjavík um miðnætti í gær og ráðist þar á húsráðanda. Enn er margt á huldu um atburðinn, að sögn Jóns Þórs Karlssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir að tilkynning um innbrotið hafi borist upp úr miðnætti en þegar lögregla kom á vettvang hafi fólkið verið horfið á braut.

Enn er óljóst hvað fólkinu gekk til en það hafði ekkert á brott með sér úr íbúðinni.

„Þetta er dálítið óljóst, en það eru þarna þrír aðilar sem ráðast inn á heimili í fjölbýlishúsi í 104-hverfinu. Þeir telja sig eiga eitthvað óuppgert eða vera í einhvers konar aðgerð, en íbúarnir kannast ekki við neitt. Þetta virkaði eins og einhver innheimtuaðgerð eða eitthvað slíkt, en íbúarnir kannast ekki við fólkið og telja sig ekki eiga neitt sökótt við einn eða neinn,“ segir Jón Þór.

Hann segir að aðeins annar húsráðendanna hafi verið heima þegar atvikið átti sér stað. Þremenningarnir hafi hins vegar viljað ná tali af hinum húsráðandanum, sem var fjarverandi. Sá maður kannast ekkert við fólkið.

Með hjálp myndefnis úr öryggismyndavélum tókst lögreglu að bera kennsl á fólkið, sem var síðar handtekið og vistað í fangaklefa.

v

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅