Óvæntur mótherji Gunnars Nelson

Gunnar Nelson og Tinie Tempah náðu vel saman.

Gunnar Nelson og Tinie Tempah náðu vel saman. Ljósmynd/Mjölnir

Bardagakappinn Gunnar Nelson fékk óvænta og skemmtilega heimsókn á æfingu hjá Mjölni þegar breski rapparinn Tinie Tempah lét sjá sig.

Tempah, sem er einn þekktasti rappari Bretlands, var í miklu stuði og tók meðal annars létta glímu við Gunnar.

Rapparinn er staddur hér á landi en hann kom fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir í gær. Þar ræddi hann meðal annars um viðburðaríkan tónlistarferil sinn, mótlæti og þær miklu breytingar sem orðið hafa á tónlistariðnaðinum á undanförnum árum.

Gunnar Nelson og Tinie Tempah náðu vel saman.

Gunnar Nelson og Tinie Tempah náðu vel saman. Ljósmynd/Mjölnirmma

Mjölnir birti myndir frá heimsókninni á Instagram-síðu sinni, þar á meðal skemmtilegar myndir af þeim Gunnari og Tempah glíma.

Tempah er ekki ókunnugur bardagaíþróttum en hann hefur æft brasilískt jiu-jitsu og meðal annars unnið til verðlauna á Opna enska mótinu.

Ef Instagram-færslan birtist ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅