Seinkanir hjá Icelandair í dag vegna flugbanns
Innlent | mbl | 14.11.2026 | 10:17
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir flugbann í Bandaríkjunum hafa valdið röskun á flugi félagsins í dag.
„Það voru talsverðar seinkanir á komum frá Bandaríkjunum og þar af leiðandi seinkun á öllu flugi til Evrópu í dag,“ segir Ásdís í samtali við mbl.is
Hún bætir við að allt stefni í að leiðarkerfið verði komið í lag seinni partinn í dag.
Bilun í fjarskiptakerfum
Bandaríska flugmálastjórnin (FAA) stöðvaði alla flugumferð í Bandaríkjunum í gærkvöldi vegna alvarlegra bilana í fjarskiptakerfum flugumferðarstjórnar.
Flugbannið stóð í um fjórar klukkustundir og var aflétt klukkan 01.15 í nótt.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗