Breki Karlsson: Núna er hægt að elta þá sem stjórna, ekki bara sekta fyrirtækin
Það var mikilvæg lagabreyting að nú er hægt að fara á eftir þeim sem taka ákvarðanir í fyrirtækjum sem verða uppvís að brotum á samkeppnisreglum. Áður voru það fyrirtækin sjálf en ekki stjórnendurnir en núna er hægt að elta stjórnendurna. Þetta er ekki síst mikilvægt núna þegar stórar samsteypur eiga orðið alla virðiskeðjuna t.d. á matvörumarkaði. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Nú náttúrlega eru eigendurnir gjarnan að stórum hluta lífeyrissjóðir.
„Jú, jú, einmitt, það er alveg rétt og við höfum einmitt skorað á lífeyrissjóði að setja sér einhvers konar eigendastefnu í arðsemiskröfu, í launastefnu stjórnenda í fyrirtækin sem þeir reka. Lífeyrissjóðirnir hafa skýlt sér á bak við það hingað til að þykjast vera einhvers konar passífir eigendur og ég spyr bara á móti, er það hægt?
Og er ekki á meðan stefnan sem er í gangi, hver sem hún er, hvort sem hún er óskrifuð eða ekki, þá er það stefna eigendanna, hvort sem þeim líkar það betur eða verr.“
Já, já, og það eru lífeyrissjóðir og stofnanafjárfestar, af því það er nú það sem lífeyrissjóðir eru, stofnanafjárfestar. Þeir hafa víða um heim alls kyns prinsipp sem þeir fara eftir. Það þýðir ekki að þeir þurfi að sko taka sæti í stjórnum fyrirtækja og hafa áhrif á reksturinn. Þeir kjósa með fótunum þannig að ef að lífeyrissjóður er ósáttur við einhverja starfshætti í fyrirtæki þar sem hann er hlutihafi, þá selur hann eða þeir kaupa ekki í slíkum fyrirtækjum.
„Einmitt, nákvæmlega.“
En ég velti fyrir mér þar sem svona ástand er og nú veit ég að þetta eru orðnar ansi stórar keðjur og þetta eru ekki bara smásölukeðjur heldur eiga þær stóran hluta af heildsöluþrepinu líka.
„Já, já, eiga bara alla virðiskeðjuna, bara allt frá innflutningsfyrirtæki og yfir í smásöluna.“
Já, já, og í einhverjum tilfellum tengjast þeir líka jafnvel innlendum framleiðendum. Maður þekkir það líka og við vitum það líka að þar sem er orðin lóðrétt samþætting í fyrirtæki, þar skiptir einmitt milliverðlagning lykilmáli af því þú getur stjórnað því hvar þú býrð til hagnaðinn og jafnvel hvar þú býrð til tap þó það sé rífandi hagnaður af heildardæminu.
„Nákvæmlega.“
Þarf ekki Samkeppniseftirlitið að fara miklu, miklu nánar í kjölinn á þessu?
„Jú, jú, og við höfum hvatt þau til þess og bent á einmitt að þessi margþátta fyrirtæki sem eru eiginlega orðnar bara stórar samsteypur, það þarf að skoða þær sérstaklega og passa það að þau misstígi sig ekki og …“
Ég er alveg klár á því að það fer enginn af stað og hugsar: Ókei, svo ætla ég bara að okra á öllum og græða og verða ríkur. En freistnivandinn er oft, þú hrasar um freistnina í öðru hverju fótspori.
„Það vaknar enginn á morgnana og segir: Ég ætla að vera vondur í dag. Ég held að það sé ekki, eða þú eigir að segja, fæstir gera það. En, já, eins og þú segir, þá er þarna freistnivandi og það er oft, til skamms tíma bara „auðveldara“ að svona fara yfir á eitthvað grátt svæði og svo ertu allt í einu kominn yfir á sko, þú ert á einhverju gráu svæði og svo ertu allt í einu orðinn kolrangstæður. Og ég er ekkert að gera einhverjum upp að ætla sér að vera það.“
En svo er þetta þegjandi samkomulag sem virðist vera, bæði í eldsneytinu og matvörunni. Þar virðist vera þegjandi samkomulag. Menn eru ekkert á fundum eða í Öskjuhlíðinni að ráða ráðum sínum. En það er bara, menn bara skilja.
„Já, já, menn þurfa það ekkert lengur. Það er alveg rétt og í sumum geirum virðist vera einmitt einhvers konar samkomulag um, um stöðnun, um að kerfið í dag sé bara það ágætasta.“
Já, já. Og eins og þú nefndir til dæmis með Prís og það var mjög sláandi dæmi og þeim var neitað um vörur, þurftu í einhverjum tilfellum að flytja inn vörur sem voru heildsalar fyrir hér á, hér á Íslandi vegna þess að það var bara neitað að versla við þá. Þeim var neitað, innlendir framleiðendur neituðu þeim um, um vörur í sömu pakkningum eða sömu stærðum og hinar keðjurnar fengu. Þarna hefði maður haldið að væri nóg af áþreifanlegum dæmum fyrir Samkeppniseftirlitið til að gera eitthvað í málinu.
„Algjörlega. En það er alltaf, þetta er spurningin um mannafla og tíma og þá þar með getu til þess að ráðast í málið. Þeir þurfa náttúrlega að forgangsraða. Það eru stór mál sem að hafa komið upp að undanförnu. Samskip og Eimskip og þetta mögulega samráð á, á flutningsmarkaði. Þetta mál með, með Ölgerðina núna og svo framvegis. Þetta eru stór mál og náttúrlega taka mjög langan tíma í rannsóknum og þarf að undirbúa vel. Og ég segi alltaf að þá sé betra einmitt að skjóta yfir markið heldur en að skjóta undir markið þannig að auðvitað þarf að efla samkeppnisyfirvöld. Virk samkeppni, hún þarfnast virks eftirlits.“
Það er náttúrlega líka það að ef atvinnulífið veit að Samkeppniseftirlitið er öflugt og hefur burði til að fara í málin og hefur mannafla til að gera það. Það er forvörn í því, í sjálfu sér.
„Algjörlega og líka þessi nýjung að það má fara á eftir einstaklingum. Það eru ekki fyrirtæki sem taka ákvörðun um brot heldur eru það stjórnendur eða starfsmenn.“
Ja, fyrirtæki sem slíkt tekur enga ákvörðun, gerir ekki neitt, það eru alltaf þeir sem taka ákvarðanirnar innan fyrirtækisins.
„Já, já, og nú er það orðið brotlegt og hægt að fara að elta þá.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗